Bifröst University
Hvernig gæti fjárfesting íslenska ríkisins í opinni menntun skilað sér í þróun þekkingarhagkerfisins? Fræðileg samantekt og greining á samspili opinnar menntunar og þekkingarhagkerfisins
Abstract
dc:description.abstractSíðustu misseri hefur verið nokkur umræða í samfélaginu um stöðu íslenska hugverkaiðnaðarins, sérstaklega eftir að Samtök iðnaðarins birtu greiningu þann 6. maí 2022 sem leiddi í ljós að um 9.000 sérfræðinga vanti á næstu 5 árum ef vaxtaráform fyrirtækja eiga að ganga eftir. Í kjölfarið hefur ríkisstjórnin gripið til sérstakra aðgerða til þess að laða að erlenda sérfræðinga með það að markmiði að auka nýsköpun og hagvöxt. Þann 14. júní 2021 gaf Efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD) út efnahagsskýrslu um stöðu Íslands en þar kemur fram að fjárfesta þurfi í menntun á Íslandi til þess að efla færni vinnuaflsins. Í þessari rannsókn er leitast eftir að fá svör við því hvort fjárfesting íslenska ríkisins í opinni menntun geti skapað hvata fyrir einstaklinga sem sjá sér ekki fært að stunda nám í núverandi menntakerfi, til að sækja sér menntun sem eflir og mætir að einhverju leyti eftirspurn íslenska þekkingarhagkerfisins eftir færu starfsfólki. Notast var við PRISMA-ScR yfirlýsinguna fyrir kögunaryfirlit (e. Scoping review) til að velja heimildir sem síðan var gerð SVÓT-greining á. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að sterkar vísbendingar eru til staðar um að opin menntun geti að þó nokkru leyti komið til móts við eftirspurn þekkingarhagkerfisins eftir færu starfsfólki auk þess að efla nýsköpun og almenna tæknifærni. Einnig sýnir rannsóknin fram á að opin menntun veiti einstaklingum sem sjá sér ekki fært að stunda nám í formlegu menntakerfi jöfn tækifæri til náms, sem í kjölfarið ýtir undir að einstaklingar nýti færnina sem hlýst af náminu til að leggja sitt af mörkum til samfélagsins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sabrína Sigurðardóttir 1991-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Sævar Ari Finnbogason 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/43467