Bifröst University
Viðskiptatryggð : hvað hefur áhrif á val neytenda á lyfjaverslun / apóteki og hverjir eru helstu áhrifaþættirnir?
Abstract
dc:description.abstractMikil samkeppni ríkir í dag á smávörumarkaði og eru þar apótek engin undantekning. Helsti munurinn á apótekum og öðrum verslunum eru þau lög og reglur sem apótek þurfa að framfylgja varðandi m.a. verðlagningu lyfja og menntun starfsfólks. Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðskiptatryggð apóteka hérlendis og varpa ljósi á þá áhrifaþætti sem skipta íslenska neytendur mestu máli þegar velja á apótek til að stunda viðskipti við. Lögð var fram rannsóknarspurningin „Hvað hefur áhrif á val neytenda á apóteki?“ sem leitast var við að svara og höfð var að leiðarljósi í gegnum allt verkefnið. Til þess að fá svar við rannsóknarspurningunni var gerð megindleg rannsókn og lögð var fram spurningarkönnun fyrir íslenska neytendur. Í fræðilegum bakgrunni rannsóknarinnar var farið yfir viðeigandi þætti og má þar finna umfjöllun um neytendahegðun, kaupákvörðunarferlið og áhrifaþætti kauphegðunar, miðaða markaðssetningu og markaðsráðana ásamt ánægju, viðskiptatryggð og tengslum þjónustu og árangurs. Þá var einnig farið yfir Íslensku ánægjuvogina, NPS-meðmælavísitölu, greiningu á apótekum hérlendis og fyrri rannsóknum um viðfangsefnið. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að sá áhrifaþáttur sem skiptir neytendur mestu máli þegar velja á apótek að stunda viðskipti við er þjónustan og því næst staðsetningin. Almennt er jákvætt viðhorf gagnvart apótekum; mikið traust ríkir til starfsmanna þeirra og um ánægða viðskiptavini er að ræða en ekki virka talsmenn. Þá kom einnig í ljós að það er almennt ekki mikil vörumerkjatryggð á apóteksmarkaði. Stjórnendur apóteka ættu samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar að leggja áherslu á eftirfarandi áhrifaþætti: Staðsetningu, þjónustu og traust.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Aðalbjörg Eggertsdóttir 1983-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Vera Dögg Höskuldsdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/43485