Back to search

Bifröst University

Áhrif stjórnunarhátta á starfsánægju : rannsókn á þjónandi forystu í tryggingafyrirtæki

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessa verkefnis er að fjalla um rannsókn sem var lögð fyrir starfsfólk í fyrirtæki á vátryggingamarkaði. Markmið rannsóknarinnar var að kanna vægi þjónandi forystu á meðal stjórnenda fyrirtækisins ásamt því að skoða mælingu starfsánægju. Einnig var skoðuð fylgni á milli þjónandi forystu og starfsánægju með fylgnigreiningu. Spurningakönnun var lögð fyrir starfsfólk og henni skipt upp í þrennt. Í fyrsta lagi var það Servant leadership survey (SLS) spurningalistinn, í öðru lagi spurning tengd starfsánægju og í þriðja lagi bakgrunnsspurningar. Mælitækið SLS um þjónandi forystu skiptist í átta þætti en þeir eru: efling, auðmýkt, falsleysi, hugrekki, forgangsröðun í þágu annarra, ábyrgðarskylda, fyrirgefning og ráðsmennska. Niðurstöður rannsóknar voru greindar út frá þessum átta þáttum. Niðurstöðurnar gáfu til kynna að þjónandi forysta mælist fremur sterk innan fyrirtækisins, en sá þáttur sem mældist hæstur var efling og sá þáttur sem mældist lægstur var hugrekki. Þátttakendur sýndu hátt hlutfall starfsánægju en 96,4% voru ánægðir eða mjög ánægðir í starfi. Marktæk jákvæð tengsl komu í ljós á milli þjónandi forystu og starfsánægju en ekki er hægt að alhæfa um tengsl vegna þess hve lág fylgnin var í nokkrum þáttum. Niðurstöður gefa ákveðna hugmynd um tengsl þjónandi forystu og starfsánægju.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Dóra K. Hlíðberg Rafnsdóttir 1995-
Advisor dc:description.advisor
  • Bjarni Heiðar Halldórsson 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/43492

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Dóra K. Hlíðberg Rafnsdóttir 1995-. Áhrif stjórnunarhátta á starfsánægju : rannsókn á þjónandi forystu í tryggingafyrirtæki. 2023. https://hdl.handle.net/1946/43492