Abstract
dc:description.abstractBella ehf. er nýsköpunarfyrirtæki í formi deilihagkerfis sem mun halda utan um gæludýraþjónustur og viðskiptavini og er fyrirtækið í formi smáforrits (e. app) sem halað er niður í snjallsíma. Í upphafi markaðsáætlunar er farið yfir þjónusturnar sem Bella mun bjóða upp á í fyrstu og því næst er rakinn fræðilegur kafli um netvanga, starfræna hagkerfið og kerfisáhrif. Gerð var markaðsrannsókn til að fræðast betur um hvort þörf sé á deilihagkerfi fyrir gæludýraþjónustur á íslenskum markaði. Markaðsáætlunin var síðan byggð með notkun ýmissa greiningartóla á borð við SVÓT, sem sér um að greina styrkleika og veikleika í innra umhverfi, PESTEL fyrir ytra umhverfi, fimm krafta líkan Porters til greiningar á samkeppnisumhverfi og einnig voru markhópar greindir fyrir miðaða markaðssetningu. Niðurstöður sýna fram á að aðalsöluvara Bellu verða þjónustufulltrúarnir sem sinna gæludýraþjónustunum og helsta áherslan verður lögð á þjálfun og síun þeirra til að tryggja öryggi gæludýraeigenda og gæludýra þeirra.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Erla Fanný Gunnarsdóttir 1985-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Vera Dögg Höskuldsdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/43496