Back to search

Bifröst University

Innleiðing hugmyndafræði Total Airport Management (TAM) á Keflavíkurflugvelli

Abstract

dc:description.abstract

Flugferðir eru almennar og þykja sjálfsagður ferðamáti. Margir flugvellir búa við takmarkaðar auðlindir (e. resources) þegar kemur að fjölda flugvélastæða og farþegahliða sem kallar á góða skipulagningu og upplýsingagjöf á milli hagaðila. En þar er að mörgu að hyggja og ýmislegt sem hefur áhrif á stundvísi loftfara (e. aircraft) eða ferðalag farþegans, horfa þarf til þess í víðara samhengi. Í þessu verkefni var rýnt í innleiðingu hugmyndafræði Total Airport Management (TAM) á Keflavíkurflugvelli og rannsóknarspurningin sem leitað var svara við er: Hvaða skref þarf að taka til að þetta verði að veruleika? Rannsóknin var framkvæmd með eigindlegum viðtölum við sex innlenda og erlenda sérfræðinga sem þekkja til starfsemi flugvalla og hafa reynslu af innleiðingu hugmyndafræðinnar. Rýnt var í hugmyndafræðina sjálfa ásamt því sem farið var yfir fræðilegan bakgrunn breytingastjórnunar, væntingastjórnunar og innleiðingu þeirra. Eðli breytinga voru einnig borin saman við þekkt líkön breytingastjórnunar. Helstu niðurstöður eru þær að samhljómur er á milli fræða breytingastjórnunar og hugmynda viðmælenda um innleiðingu breytinga, en fylgja þarf þekktum líkönum að farsælum breytingum til að árangur sé í samræmi við væntingar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhanna María Gylfadóttir 1968-
Advisor dc:description.advisor
  • Vera Dögg Höskuldsdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/43521

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhanna María Gylfadóttir 1968-. Innleiðing hugmyndafræði Total Airport Management (TAM) á Keflavíkurflugvelli. 2023. https://hdl.handle.net/1946/43521