Back to search

Bifröst University

Er Besta deildin besta deildin? Er vörumerkið, ímynd og gildi Bestu deildarinnar eins og lagt var upp með í byrjun?

Abstract

dc:description.abstract

Vörumerki efstu deildar í fótbolta á Íslandi hefur í gegnum tíðina verið bundið við aðalsamstarfsaðila deildarinnar hverju sinni. Breyting varð í þeim efnum þegar Íslenskur Toppfótbolti (ÍTF) þróaði og setti á laggirnar nýtt vörumerki fyrir deildina sem var ekki bundin við einn samstarfsaðila. Þetta nýja vörumerki fékk nafnið Besta deildin og var formlega kynnt í febrúar 2022. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að athuga hvernig vörumerkjavitund, ímynd og gildi Bestu deildarinnar eru í samanburði við það sem var lagt upp með í byrjun hjá ÍTF. Notast var við bæði megindlega og eigindlega rannsóknaraðferð við gerð rannsóknarinnar. Megindleg rannsókn var í formi rafrænnar spurningakönnunar sem var send út í gegnum samfélagsmiðilinn Facebook og eigindlega rannsóknin var viðtal við framkvæmdarstjóra og markaðstjóra ÍTF. Niðurstöðurnar úr rannsókninni leiddi það í ljós að markmið ÍTF varðandi þetta nýja vörumerki hafa tekist að mörgu leyti. Vörumerkjavitundin virðist vera nokkuð góð og ímyndin jákvæð. Einnig virðast áhorfendur Bestu deildarinnar vera jákvæðir gagnvart þessu nýja nafni, nýja verðlaunagrip, deildinni sjálfri og almennt gagnvart vörumerkinu sjálfu. Það er ljóst að það er ýmislegt sem má bæta, en heilt yfir hefur vörumerkið farið vel af stað í hugum þátttakenda rannsóknarinnar og verður áhugavert að fylgjast með framhaldinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Tómas Ingi Þórðarson 1987-
Advisor dc:description.advisor
  • Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/43532

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Tómas Ingi Þórðarson 1987-. Er Besta deildin besta deildin? Er vörumerkið, ímynd og gildi Bestu deildarinnar eins og lagt var upp með í byrjun?. 2023. https://hdl.handle.net/1946/43532