Back to search

Bifröst University

Áhrif mannréttindaákvæða á réttarstöðu félaga

Abstract

dc:description.abstract

Ágrip Álitamál um áhrif mannréttindaákvæða á réttarstöðu félaga hafa ekki verið til umræðu á meðal íslenskra fræðimanna svo að heitið getur, sem helgast væntanlega af því hvað mannréttindi félaga ríma illa við grunnhugmyndir um mannréttindi. Þetta viðfangsefni vekur því óneitanlega upp áleitnar spurningar og þá sérstaklega hvort félag njóti almennt mannréttinda eða hvort um undantekningarreglu sé að ræða. Ákveðin mannréttindaákvæði eru hér dregin sérstaklega út með það fyrir augum að ná almennri mynd af áhrifum mannréttinda á réttarstöðu félaga. Fjallað er sérstaklega um félagafrelsi, réttláta málsmeðferð fyrir dómi, jafnræðisregluna, friðhelgi eignarréttar, friðhelgi einkalífs og að lokum tjáningarfrelsi. Þegar að þessi þverskurður á mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar liggur fyrir má það ljóst vera að almenna reglan er sú að lögaðilar njóta verndar mannréttindaákvæða þegar þau eiga við. Sú afstaða er að mestu leiti rakin til túlkunar Mannréttindadómstóls Evrópu á ákvæðunum sem gefið hefur það út að mannréttindasáttmálinn sé í raun lifandi plagg og túlka þurfi hann í ljósi breytinga í samfélaginu á hverjum tíma. Þessu fylgir þó sá galli að réttindi sem einu sinni er búið að veita er að öllu jöfnu erfitt að taka til baka

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Steinbergur Finnbogason 1973-
Advisor dc:description.advisor
  • Ástráður Haraldsson 1961-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/4419

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Steinbergur Finnbogason 1973-. Áhrif mannréttindaákvæða á réttarstöðu félaga. 2010. https://hdl.handle.net/1946/4419