Back to search

Bifröst University

Lýðræðisumbætur með slembihópum : hvernig nýta mætti slembihópa til lýðræðisumbóta á sveitarstjórnarstiginu

Abstract

dc:description.abstract

Samráð stjórnvalda við almenning er algengt umræðuefni á vettvangi stjórnmála og ýmsar leiðir eru til þess að ná fram skoðunum almennings á málefnum sem eru til umræðu. Gagnsemi hefðbundinna skoðanakannana hefur verið dregin í efa og algengt er að stjórnmálamenn vísi í niðurstöður þeirra eftir hentugleika. Auk þess veita skoðanakannanir almenningi ekki tækifæri til þátttöku í umræðum eða ákvörðunum og geta því ekki kallast samráð. Í þessari ritgerð verður fjallað um eina af þeim samráðsleiðum sem gætu nýst til þess að efla þátttöku almennings og stuðla að aukinni sátt um ákvarðanir, svokallaða slembihópa. Slembihópar hafa orðið algengari á síðustu áratugum og eru til í ýmsum útfærslum, en eiga það þó sameiginlegt að þar eru þátttakendur valdir af handahófi til þess að fjalla um tiltekin málefni. Fjallað verður um kenningu um rökræðulýðræði sem býr að baki hugmyndinni um slembihópa og hvort að þeir bæti lýðræðislega ákvarðanatöku. Verkefnið felst í fræðilegri umfjöllun um slembihópa og hvort að þeir geti nýst á sveitarstjórnarstiginu á Íslandi. Fjallað er um mismunandi útfærslur og hvernig þær gætu virkað í þessu umhverfi og skoðað er hvernig mætti formfesta slembihópa á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga. Niðurstöðurnar benda til þess að slembihópar geti bætt lýðræðislega ákvarðanatöku að því leyti að þeir tryggja að tekið sé tillit til margra sjónarmiða með fjölbreyttum hópi þátttakenda. Enn fremur gefa þær til kynna að fáar kerfislægar hindranir standi í vegi fyrir því að slembihópum sé komið á fót hjá sveitarfélögum á Íslandi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Einar Freyr Elínarson 1990-
Advisor dc:description.advisor
  • Sævar Ari Finnbogason 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/45140

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Einar Freyr Elínarson 1990-. Lýðræðisumbætur með slembihópum : hvernig nýta mætti slembihópa til lýðræðisumbóta á sveitarstjórnarstiginu. 2023. https://hdl.handle.net/1946/45140