Bifröst University
"Fram til sigurs!" Upplifa konur sem starfa í lykilstöðu innan íslenska kvikmyndaiðnaðarins að þeim sé treyst og að þær fái sömu tækifæri og karlar í sömu stöðu?
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um hvort að konur sem starfa í lykilstöðu innan íslenska kvikmyndaiðnaðarins upplifi að þeim sé treyst og að þær fái sömu tækifæri og karlar í sömu stöðu. Rannsakandi skoðaði innlendar og erlendar rannsóknir sem liggja fyrir í þessum efnum ásamt tölulegum upplýsingum er málið varðar til að draga saman núverandi þekkingu. Ritgerð þessi byggir á eigindlegri rannsókn sem rannsakandi framkvæmdi. Rannsókn þessi gefur innsýn í hugarheim og reynslu kvenkyns leikstjóra sem starfa við kvikmyndagerð hér á landi. Þátttakendur viðtalsrannsóknarinnar fengu tækifæri á að segja frá sinni upplifun og bera saman stöðu sína eins og hún er nú í dag í samanburði við stöðu sína fyrir 10 árum. Niðurstöður rannsóknarinnar eru að viðhorfsbreyting hefur orðið í íslenska kvikmyndaiðnaðinum síðastliðin 10 ár og að mestu breytingarnar hafa orðið í kjölfar byltinganna #MeToo og Tjaldið fellur. Traust hefur aukist og tækifærum hefur fjölgað töluvert. Þó komu upp bæði nýlegar og eldri frásagnir af vantrausti. Einnig komst rannsakandi að því að karlar fengu 18,8% meira fjármagn úthlutað úr framleiðslusjóði Kvikmyndasjóðs árið 2022 í samanburði við konur. Þess ber þó að geta að konur voru minnihluti umsækjenda, sérstaklega í flokknum leiknar kvikmyndir í fullri lengd, eða 22%. Það er því ljóst að þörf er á hvatningu fyrir konur að sækja um styrki og þá með meiri stuðningi, til dæmis varðandi traust, tækifæri og styrkveitingar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðrún Birna Pétursdóttir 2001-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Anna Hildur Hildibrandsdóttir 1962-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/45143