Back to search

Bifröst University

Kynhlutleysi í upplýsinga- og kynningarefni fyrirtækja og stofnanna

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessa verkefnis er kynhlutleysi í upplýsinga- og kynningarefni fyrirtækja og stofnana. Þá hvort stjórnendur og þeir sem áhrif hafa á upplýsingagjöf frá fyrirtækjum telji nauðsynlegt að fara í þá vegferð að breyta útgefnu efni með tilliti til kynhlutleysis. Miklar breytingar hafa átt sér stað á undanförnum 100 árum eða frá þeim tíma sem réttindabarátta samkynhneigðra hófst. Sem betur fer eru samfélög farin að taka betur á móti þeim einstaklingum sem skilgreina sig annað en það kyn sem þau fengu í vöggugjöf. Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja sem eru á sölu- og þjónustumarkaði verður alltaf meiri eftir því sem fyrirtæki eiga auðveldara með að nálgast viðskiptavini til að mynda með útgefnu efni á samfélagsmiðlum. Í þessu verkefni verður leitað að skoðun stjórnenda innan stórra fyrirtækja, stofnana og sveitarfélags varðandi kynhlutleysi í útgefnu efni. Skoðað verður hvar þeirra fyrirtæki standa gagnvart breytingum á því efni sem almenningur hefur aðgang að og hvert þau stefna. Eigindleg rannsókn var framkvæmd þar sem viðtöl voru tekin við fimm stjórnendur sem höfðu eitthvað um málaflokkinn að segja hjá sínu fyrirtæki. Viðtölin voru svo þemagreind og dregin saman í niðurstöður. Þar sem þetta er frumrannsókn á efninu þá er vonast til að niðurstöðurnar veiti einhverja innsýn inn í hvert fyrirtæki í landinu stefna gagnvart kynhlutleysi í útgefnu efni. Niðurstöðurnar sýndu að þau fyrirtæki sem veittu viðtal voru öll farin að hafa málefnið í huga við gerð á útgefnu efni. Þau voru komin mis langt á veg en öll áttu þau það sameiginlegt að vera farin af stað í vinnuna. Lykilorð: kynhlutleysi, upplýsinga- og kynningarefni, samfélagsábyrgð, réttindabarátta

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingimundur Jónasson 1982-
Advisor dc:description.advisor
  • Andrea Guðmundsdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/45146

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingimundur Jónasson 1982-. Kynhlutleysi í upplýsinga- og kynningarefni fyrirtækja og stofnanna. 2023. https://hdl.handle.net/1946/45146