Bifröst University
Hvernig taka sveitarfélög á málefnum fatlaðs fólks sem telst hættulegt?
Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerðinni er fjallað um fatlað fólk sem vegna fötlunar sinnar þarfnast öryggisráðstafana til að tryggja öryggi þeirra og annarra þ.e.a.s. fatlað fólk sem sýnir hættulega hegðun og ógnar öryggi annarra. Alþjóðleg eftirlitsnefnd og aðstandendur fólks með margþættann vanda hafa gagnrýnt úrræðaleysi í þessum málaflokki. Kallað hefur verið eftir fleiri búsetuúrræðum fyrir fólk með alvarlegan og margþættan vanda. Sveitarfélög hafa átt í erfiðleikum með að uppfylla skyldur sínar við að þjónusta þennann hóp. Borið hefur verið á óvissu og rugling hvort ríki eða sveitarfélög skal fara með þessi málefni. Alþjóðlegar skuldbindingar Íslands um réttindi fatlaðs fólks eru miklar og því fylgja strangar reglur sem þarf að uppfylla. Frá árinu 2011 hafa sveitarfélög farið með málefni fatlaðra almennt. Ríkið fer svo með heilbrigðismál og dómsmál fyrir alla og þá einnig þegar kemur til fatlaðra einstaklinga sem fremja afbrot sem rekja megi til fötlunar þeirra. Ríkið hefur ekki um að ráða úrræðum sem geta séð um öryggisvistun fatlaðs fólks sem eru ósakhæf og hefur ríki gert samninga við sveitarfélög um að sinna þeim. Þau úrræði hafa svo ekki gengið vel, sveitarfélögin geta ekki sinnt þeim verkefnum vel þar sem ekki er fyrir hendi skýr lagarammi um hvað þarf að gera. Það þarfnast breytinga á lögum. Það virðist þó vera lausn í sjónmáli þar sem ríki og sveitarfélög vinna saman að því að koma á fót Öryggisþjónustu ríkisins. Sem á að leysa helstu vandmál þessa málaflokks og gefa fólki, sem hefur hingað til dvalið á óviðeigandi stöðum, viðeigandi samastað.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hafsteinn Jóhannsson 1991-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Bryndís Gunnlaugsdóttir 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/45151