Back to search

Bifröst University

Fjarvinna : ógn eða tækifæri í rekstri skipulagsheilda?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að skoða fjarvinnu og sveigjanleika starfa út frá sjónarhorni stjórnenda og skipulagsheilda, með áherslu á að skoða hver sé helsti ávinningur og hverjar séu helstu áskoranir vinnufyrirkomulagsins. Einnig vildi rannsakandi skoða forsendur fjarvinnu og hvaða áhrif fyrirkomulagið hefur á rekstur og aðra þætti skipulagsheildarinnar. Þá var leitast við að kanna hvort fjarvinna og sveigjanleiki starfa sé vinnufyrirkomulag framtíðarinnar. Hér er um eigindlega rannsókn að ræða. Tekin voru fjögur hálf-opin viðtöl við stjórnendur skipulagsheilda, þar sem fjarvinna og sveigjanleiki er hluti af vinnufyrirkomulagi. Rannsóknarspurningin sem leitast var eftir að svara er eftirfarandi: Er fjarvinna ógn eða tækifæri í rekstri skipulagsheilda? Fræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar tekur til viðeigandi fræðagrunns, þar sem finna má fræðilega umfjöllun um vinnumarkaðinn, fjarvinnu, sveigjanleika og umhverfi. Einnig er farið yfir helstu þætti innan skipulagsheildarinnar sem breytt vinnufyrirkomulag hefur áhrif á. Fjallað er um fyrri rannsóknir á viðfangsefninu. Helstu niðurstöður gefa til kynna að stjórnendur skipulagsheilda telji fjarvinnu og sveigjanleika vera orðinn hluti af hefðbundnu vinnuumhverfi til framtíðar. Fylgi skipulagsheildir ekki þeirri þróun muni það hafa áhrif á samkeppnishæfni þeirra á vinnumarkaði. Ávinningur af fjarvinnu geti stutt við starfsánægju og stuðlað að bættu jafnvægi vinnu og einkalífs starfsfólks, sem skili sér í auknum afköstum fyrir skipulagsheildina. Það geti þó einnig reynst skipulagheildinni áskorun, þar sem mörkin á milli vinnu og einkalífs verði óskýr sem getur haft neikvæð áhrif á afköst starfsfólks. Fyrirkomulagið skapi nýjar áskoranir fyrir stjórnendur og rekstur skipulagheilda með breyttri stjórnun, menningu og samskiptum við starfsfólk. Lykilhugtök: Fjarvinna, sveigjanlegt starfsumhverfi, rekstur skipulagsheilda, áskoranir, ávinningur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bryndís Lúðvíksdóttir 1972-
Advisor dc:description.advisor
  • Jón Snorri Snorrason 1955-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/45170

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bryndís Lúðvíksdóttir 1972-. Fjarvinna : ógn eða tækifæri í rekstri skipulagsheilda?. 2023. https://hdl.handle.net/1946/45170