Abstract
dc:description.abstractLeiðtogar eru allsstaðar. Ekki bara inni á vinnustaðnum sem stjórnendur heldur eru þeir partur af okkar daglega lífi. Það er alltaf að minnsta kosti einn leiðtogi í hópnum. Hvort sem það er sá sem ratar leiðina í hlaupahópnum eða sá sem er með mestu þekkinguna í vinnunni. Leiðtogar eru líka ólíkir karakterar. Við erum öll mismunandi og því eru leiðtogarnir okkar einnig ólíkir. Rannsóknarspurningin sem var lögð fram í þessari ritgerð var ,,Eiginleikar leiðtoga‘‘ og var rannsakað hvaða eiginleikar ólíkir leiðtogar hafa. Einnig er horft til vægi þjónandi forystu til þess að meta eiginleika leiðtoga. Markmið rannsóknarinnar var að meta eiginleika leiðtoga með vægi þjónandi forystu. Viðtöl voru tekin við þrjá einstaklinga sem starfa allir hjá sama fyrirtæki en þó á mismunandi vinnustöðum og eru allir leiðtogar á sínu sviði. Unnið var út frá OLA líkaninu (Laub, 2018). Eigindleg rannsókn var framkvæmd og þrjú viðtöl voru tekin við starfsmenn sama fyrirtækis sem verður nafnlaust. Rannsakandi tók þá ákvörðun að segja viðmælendum ekki frá því að unnið væri út frá vægi þjónandi forystu. Sú ákvörðun gaf áhugaverður niðurstöður þar sem að allir þrír viðmælendur voru þjónandi leiðtogar og vinna út frá hugmyndafræði þjónandi forystu án þess að gera sér grein fyrir því. Niðurstöður leiddu í ljós að þeir eiginleikar sem leiðtogar eiga að hafa eru þeir sömu og eiginleikar þjónandi leiðtoga.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Eva María Larsen Bentsdóttir 1999-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Skúli Sigurður Ólafsson 1968-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/45176