Bifröst University
Umbúðir eru ekki lengur aðeins umbúðir : hver er ávinningur umbúða fyrir fyrirtæki í núverandi samfélagsmiðla umhverfi?
Abstract
dc:description.abstractVöruumbúðir í dag gegna mun stærra hlutverki en aðeins til að verja vöruna. Útlit umbúða getur haft áhrif á það hvort neytandi taki meðvitaða eða ómeðvitaða ákvörðun um að kaupa tiltekna vöru umfram aðra. Með tilkomu samfélagsmiðla sem markaðstól, getur útlit vöruumbúða skipt lykilhlutverki í birtingu á vörum fyrirtækis. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á og auka skilning og þekkingu á hvaða áhrif það hefur fyrir fyrirtæki að fjárfesta í umbúðum vara, hvort fyrirtæki telji sér trú um það að neytendur séu tilbúnir að birta efni af vörum sínum á sína eigin miðla sem dæmi, séu umbúðir veglegri en ef ekki. Rannsóknin er mikilvæg vegna þess að fyrirtæki eru nú að spýta í lófana sem aldrei fyrr, hröð þróun er á birtingarleiðum vara og ekki síður núna eftir Covid-19 faraldurinn vegna þeirra áhrifa sem hann hafði á fyrirtæki á Íslandi. Niðurstöður sýna fram á að hægt er að auka vöruvirði með einföldum hætti. Í gagnaöflun rannsóknarinnar var stuðst við eigindlega rannsóknaraðferð. Tekin voru hálfopin viðtöl við fimm viðmælendur. Viðmælendur rannsóknarinnar voru valdir með tilliti til þess að allir eru þeir að markaðssetja ásnertanlega vöru á íslenskum markaði. Niðurstöður þessara rannsóknar benda til þess fyrirtæki séu meðvituð um það hvernig á að koma vörum þeirra á framfæri og mikilvægi góðra umbúða í nútíma samfélagsmiðla markaðsumhverfi. Niðurstöður sýndu að viðmælendur bregðast vel við breyttu umhverfi og áherslum sem þær bera, líkt og að bjóða upp á umhverfisvænar vöruumbúðir og nýtingu samfélagsmiðla í markaðsstarfi sínu. Niðurstöður sýndu einnig fram á að góðar og flottar vöruumbúðir spili lykilhlutverk í að virkja neytendur á samfélagsmiðlum og ýta undir frekari birtingu á miðlum. Veglegar umbúðir veita fyrirtækjum aukið virði og ímynd um gæði vörunnar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóhann Helgi Sveinsson 1993-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Einar Svansson 1958-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/45180