Bifröst University
Móttaka og þjálfun nýrra starfsmanna í Kjörís : hvar má gera betur?
Abstract
dc:description.abstractHvernig nýr starfsmaður upplifir fyrstu dagana sína í starfi getur haft mikilvæg áhrif mótun hans í starfi, afköst og starfsánægju. Mikilvægt er að standa faglega og skipulega að móttöku og þjálfun nýrra starfsmanna strax frá því að gengið hefur verið frá ráðningu. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvernig móttöku og þjálfun nýrra starfsmanna í Kjörís væri háttað ásamt því að skoða hvort og þá hvar betur mætti fara. Lögð var fram rannsóknarspurningin; „Hvernig er móttöku og þjálfun nýrra starfsmanna í Kjörís háttað?“ Notast var við megindlega aðferðafræði til þess að reyna að svara rannsóknarspurningunni þar sem sendur var spurningalisti á alla starfsmenn Kjörís. Niðurstöður rannsóknarinnar gáfu vísbendingar um hvernig móttöku og þjálfun er háttað í Kjörís. Eins gefa þær til kynna að almenn ánægja er með móttöku og þjálfun nýrra starfsmanna. Samræma mætti og auka upplýsingagjöf og kynningu á fyrirtækinu og gildum þess ásamt því að innleiða mætti skipulegri og faglegri verkferla í móttöku- og þjálfunarferlinu. Tillögur rannsakanda eru meðal annars að gera ítarlega starfsgreiningu ásamt því að hanna og innleiða faglegt móttöku- og þjálfunarferli.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóhanna Ýr Ólafsdóttir 1982-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Anna Marín Þórarinsdóttir 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/45182