Abstract
dc:description.abstractStaumlínustjórnun á upphaf sitt í framleiðslufyrirtækjum. Þaðan þróaðist notkun hennar einnig inn á þjónustufyrirtæki. Á undanförnum árum hefur straumlínustjórnun aukist til muna innan borga og bæja sem og öðrum opinberum stofnunum. Áhersluatriði straumlínustjórnunar ríma vel við aðstæður sveitarfélaga. Það er að stuðla að virðisaukningu fyrir viðskiptavininn og eyða út allri óþarfa sóun. Hér verður fjallað um félagsmiðstöðvar í Kópavogi og hvernig straumlínustjórnun getur hjálpað þeim að vera skilvirkari í rekstri og starfi. Ávinningur af straumlínustjórnun í félagsmiðstöðvum er að minnka sóun, jafna álag, stuðla að þróun og þroska starfsmanna og samræma og staðla vinnubrögð. Gerð var eigindleg rannsókn þar sem rætt var við fimm forstöðumenn félagsmiðstöðva sem og deildarstjóra og verkefnastjóra Frístunda- og forvarnardeildar Kópavogs. Viðtölin voru nýtt til þess að skoða hvernig verkferlar væru nú þegar hjá þessum stofnunum til að hægt væri að koma auga á vandamál sem mætti laga með straumlínulaga aðferðum. Niðurstöður gefa til kynna að straumlínustjórnun býður upp á ýmis verkfæri sem stjórnendur geta nýtt sér til að vera skilvirkari í starfi. Mesta áskorunin er að kortleggja viðskiptavini félagsmiðstöðva. Rannsóknir sýna að það er alls ekki skýrt hverjir viðskiptavinir í sveitarfélögum eru og það var einnig lendingin hér. En í straumlínustjórnun er nauðsynlegt að vita hverjir viðskiptavinirnir eru til þess að reyna að greina hvað þeir skilgreina sem virði. Niðurstaðan var að skilgreina nokkra viðskiptavinahópa og forgangsraða verkefnum eftir þeim. Í umræðukafla má finna markmið sem stuðla að straumlínulagaðra vinnuumhverfi og hugmynd að úrbótum hvernig væri hægt að ná þeim. Þessi markmið eru rétt forgangsröðun, gefa sér tíma til að vinna í næði, sameiginlegt rafrænt skipulagskerfi fyrir stjórnendur, nýta getu starfsmanna, skilvirkari samskipti og sjónrænt skipulagskerfi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sunna Rut Garðarsdóttir 1991-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Sigurdur Blöndal 1960-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/45190