Abstract
dc:description.abstractSíðustu ár hafa einkennst af hraðri þróun tækni og stafrænna miðla. TikTok er sá samfélagsmiðill sem hraðast vex þessi misserin, en fáar rannsóknir liggja fyrir um hvað íslenskir notendur eru að gera á TikTok og hversu vel íslensk fyrirtæki ná til þeirra. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hverjir íslenskir TikTok notendur eru og í hvaða tilgangi þeir nýta miðilinn og hvort TikTok hafi áhrif á kauphegðun þeirra. Annað markmið er að kanna hvort íslensk fyrirtæki séu sýnileg á TikTok og hvaða áhrif það hefur á viðhorf notenda. Rannsóknin fór fram með blöndu eigindlegra og megindlegra rannsóknaraðferða til þess að kanna notkun einstaklinga á TikTok. Einnig var framkvæmd eigindleg rannsókn á viðhorfi og upplifun markaðsstjóra af TikTok frá fyrirtækjahliðinni séð. Álykta má út frá niðurstöðum að TikTok sé sterkur skemmtanamiðill, en einnig mikið nýttur sem fræðslumiðill. Konur og Z-kynslóðin eru stærstu notendahópar TikTok en Aldamótakynslóðin er einnig fjölmenn á miðlinum. Niðurstöður sýna að TikTok getur haft mikil áhrif á kauphegðun neytenda, þar sem yfir helmingur þátttakenda sagðist hafa keypt vörur eftir að hafa séð umfjöllun á TikTok og helmingur þátttakenda sagðist hafa hætt við að kaupa vörur eftir að hafa sé neikvæða umfjöllun á TikTok. Flestir þátttakenda höfðu orðið varir við íslensk fyrirtæki á TikTok, en nefndu þó fá nöfn. Nokkrir risar eru á íslenska TikTok fyrirtækjamarkaðnum, en fá fyrirtæki eru mjög áberandi þess utan. Flestir viðmælenda sögðu það ekki hafa jákvæð eða neikvæð áhrif á viðhorf þeirra að fyrirtæki væri á TikTok.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Klara Símonardóttir 1984-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Edda Blumenstein 1976-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/45198