Abstract
dc:description.abstractÍslenskur kvikmyndaiðnaður var skoðaður ásamt verkefnastjórnun, og fjallað um notkun verkefnastjórnunarferla við gerð íslenskra kvikmynda. Í rannsókninni var stuðst við hin ýmsu gögn eins og viðtöl við framleiðendur íslenskra kvikmynda og leikstjóra sem veittu góða innsýn inn í kvikmyndaiðnað á Íslandi. Einnig voru notuð gögn frá Kvikmyndamiðstöð Íslands, Hagstofu Íslands ásamt ýmsum ritrýndum greinum og fræðiritum. Viðmælendur rannsóknarinnar sem gerð var voru allir sammála um að ákveðnir verkferlar væru notaðir í kvikmyndaframleiðslu. Framleiðendur virðast nýta verkefnastjórnunarferla samkvæmt Alþjóðasamtökum verkefnastjóra (e. Project Management Institute) þegar verið er að skipuleggja kvikmyndaverkefni. Hlutverk verkefnastjóra og framleiðanda eru að mörgu leyti eins. Þar sem markmið beggja er að verkefninu sé lokið á tilsettum tíma, að kostnaðaráætlun standist og að verkefnið dragist ekki fram yfir fyrir fram áætlaðan tíma. Verkáætlun er gerð í byrjun og sótt um styrki, yfirleitt er fyrsti styrkur handritastyrkur frá Kvikmyndamiðstöð Íslands. Að því loknu er komið að framleiðslunni og þá þarf að fylgjast vel með kostnaði og framgangi verkefnisins. Tíma- og kostnaðaráætlun er mjög mikilvæg í starfi framleiðenda, því allt byggist á að fara ekki fram yfir áætlaðan kostnað við gerð verkefnisins. Verkefnastjórnunarferlarnir gera ráð fyrir því að verkinu sé lokið þegar lokaafurðin er tilbúin. Framleiðandi kvikmyndaverkefnis heldur hins vegar áfram að vinna við verkefnið. Því það þarf að kynna og dreifa efninu, fara á hátíðir og mögulega taka við verðlaunum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðný Sch. Snæbjörnsdóttir 1963-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Erlendur Ingi Jónsson 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/45199