Back to search

Bifröst University

Starfshönnun og starfstengd viðhorf lífeindafræðinga

Abstract

dc:description.abstract

Lífeindafræðingar stunda rannsóknir og greiningar á lífsýnum og eru nokkuð falin stétt innan heilbrigðiskerfisins. Lítið er til af rannsóknum um starfshönnun og upplifun hjá lífeindafræðingum og þessi rannsókn er liður í að bæta úr því. Markmiðið er að auka þekkingu á þáttum sem lúta að starfshönnun og viðhorfi til starfsins meðal lífeindafræðinga og bera þær niðurstöður saman við svör hjúkrunarfræðinga á sömu þáttum. Hönnun starfa tekur m.a. á verkefnum, þekkingu, ábyrgð, samskiptum og tækni auk tímaramma og samþættingu við önnur störf. Sýnt hefur verið fram á að starfshönnun hefur mikil áhrif á upplifun og hegðun starfsmanna. Viðurkenndir og áreiðanlegir spurningalistar um starfshönnun, starfsánægju, kulnun og áform um starfslok sem áður höfðu verið notaðir hér á landi í alþjóðlegri rannsókn voru lagðir fyrir lífeindafræðinga snemma árs 2023. Þetta er megindleg samanburðarrannsókn þar sem svör 65 lífeindafræðinga voru rýnd og borin saman við svör 82 hjúkrunarfræðinga úr alþjóðlegu rannsókninni frá árinu 2018. Helstu styrkleikar í starfshönnun, að mati lífeindafræðinga í þessari rannsókn, eru að störfin eru mikilvæg, sérhæfð, fjölbreytt og flókin þar sem þekking lífeindafræðinga nýtist og þeir hafi góðan félagslegan stuðning. Hjúkrunarfræðingar og lífeindafræðingar álíta sig vinna ámóta flókin störf og hafa álíka mikla þekkingu og félagslegan stuðning til þess að sinna þeim. Helstu veikleikar eru að lífeindafræðingar fá takmarkaða endurgjöf bæði frá starfinu sjálfu sem og frá samstarfsfólki. Þá hafa þeir takmörkuð áhrif á hvernig þeir vinna vinnu sína. Líkamlegt álag virðist vera helsti veikleiki hjá hjúkrunarfræðingum en notkun flókinna tækja hjá lífeindafræðingum. Starfsánægja þessara stétta er nokkuð mikil en hjúkrunarfræðingar finna aðeins oftar fyrir kulnunareinkennum og eru marktækt líklegri en lífeindafræðingar til að áforma starfslok.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lóa Björk Óskarsdóttir 1981-
Advisor dc:description.advisor
  • Arney Einarsdóttir 1962-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/45201

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lóa Björk Óskarsdóttir 1981-. Starfshönnun og starfstengd viðhorf lífeindafræðinga. 2023. https://hdl.handle.net/1946/45201