Bifröst University
Verðlagning íslenskra innflutningsfyrirtækja á dagvörumarkaði og áhrif kreppu
Abstract
dc:description.abstractMiklar breytingar hafa átt sér stað í íslensku efnahagslífi frá bankahruninu árið 2008. Íslensk fyrirtæki í flestum atvinnugreinum finna að öllum líkindum fyrir þessum breyttu aðstæðum og þá sérstaklega þau er starfa við innflutning. Verðbólga hefur verið há á Íslandi síðustu ár og hefur verðlag verið hærra á íslenskum dagvörumarkaði en verð á dagvörumörkuðum samanburðarlanda. Verðlag innfluttra vara hefur hækkað til muna í kjölfar kreppu sem hefur leitt til þess að neytendahegðun almennings hefur breyst. Gengisbreytingar skila sér ekki beint út í almennt verðlag ef litið er til skemmri tíma, en hinsvegar skila þær sér hraðar í innflutningsverð en neysluverð. Aðferðin sem notuð er við rannsóknina er í senn eigindleg og meigindleg. Lagt var upp með að skýra lykilhugtök sem viðkoma hinum íslenska markaði og hvernig verðlagningu er háttað á Íslandi. Til þess að dýpka skilning á viðfangsefninu var stuðst við eigindlegar heimildir sem aflað var með djúpviðtölum við sölu- og innkaupastjóra íslenskra innflutningsfyrirtækja. Ritgerðin skýrir markaðsaðstæður í litlum hagkerfum eins þeim íslenska og hvernig áhrif kreppa hefur á verðmyndun. Verðlagning innflutningsfyrirtækja hefur tekið ákveðnum breytingum. Hækkun fjármagnskostnaðar, stað- og fyrirframgreiðslur pantana, aukinn og aukin fjárbinding í birgðum gera það að verkum að álagning hefur aukist á dagvörum. Fyrirtæki eru meira á varðbergi varðandi gengisþróun og endurskoða verð sín oftar en áður. Þetta hefur í för með sér að verðbreytingar eru tíðari en fyrir bankahrun. Gengisleki í innflutningsverð hefur því að öllum líkindum aukist í kjölfar veikingar krónunnar
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ísak Gunnarsson 1986-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Kári Joensen 1979-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/4583