Bifröst University
Starfsandi á vinnustöðum : könnun meðal starfsfólks Háskólans á Bifröst
Abstract
dc:description.abstractVið gerð þessarar ritgerðar voru heimildir um áhrifaþætti starfsanda bornar saman og þannig fundið út hverjir þeirra væru almennt taldir skipta mestu máli. Skoðaðar voru afleiðingar slæms starfsanda og hvernig mætti reyna að bæta úr honum en einnig var skoðaður sá ávinningur sem felst í að halda uppi góðum starfsanda. Þannig er rætt um hvar gróði fyrirtækis liggur og hvar innan þess áhrifin sjást best. Einnig voru skilgreiningar á hugtakinu starfsanda ræddar og helstu vandamál við mælingar sett fram. Niðurstöður urðu þær að helstu áhrifaþættir starfsanda væri hægt að skipta niður í næsta yfirmann, upplýsingaflæði og samskipti á vinnustað, umbun og viðurkenningu, starfið sjálft, starfsumhverfið og fyrirtæki og æðri stjórn. Innan þessara þátta búa síðan mörg lítil atriði sem rædd eru frekar í ritgerðinni. Í rannsóknarhluta ritgerðarinnar má síðan finna niðurstöður úr rannsókn sem gerð var í tengslum við hana. Könnunin snýr að starfsanda meðal starfsfólks Háskólans á Bifröst og var gerð í formi spurningalista sem byggður var á áðurnefndum áhrifaþáttum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigurlaug Jónsdóttir 1986-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Ásta Dís Óladóttir 1972-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/4598