Bifröst University
Eflir námið "Forysta til framtíðar" stjórnendur Samkaupa í leiðtogafærni?
Abstract
dc:description.abstractÁherslur á forystu hafa þróast í tímans rás. Víðast hafa harðir stjórnarhættir vikið fyrir leiðtogasýn sem hvílir á þjónustu og hvatningu. Nútímaleiðtogar leitast fremur við að vera góðar fyrirmyndir sem leiða, hlusta og sameina fólk í átt að þeim markmiðum sem stefnt er að. Rannsóknir hafa sýnt fram á að þjónandi forysta er góð leið til árangurs og byggir jafnframt á sterkum siðferðislegum grunni. Hún er sögð leiða til aukinnar starfsánægju sem er markmið í sjálfu sér en getur um leið veitt fyrirtækjum samkeppnisforskot á markaðinum. Tilgangur þessarar ritgerðar var að meta vægi þjónandi forystu á vinnustað. Viðfang rannsóknar eru verslunarstjórar Samkaupa sem hafa lokið náminu Forysta til framtíðar. Viðtöl voru tekin við sjö verslunarstjóra sem lokið hafa náminu og spurningakönnun var lögð fyrir starfsfólk þeirra til að meta vægi þjónandi forystu innan vinnustaðarins. Til samanburðar var einnig send út könnun á allt starfsfólk Samkaupa. Niðurstöður leiða í ljós að verslunarstjórarnir hafa hugarfar þjónandi leiðtoga og vægi þjónandi forystu innan Samkaupa er afar hátt, og gefa einnig til kynna að þjónandi forysta hafi jákvæð áhrif á ánægju í starfi hjá Samkaupum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Aldís Ólöf Júlíusdóttir 1985-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Skúli Sigurður Ólafsson 1968-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/46309