Back to search

Bifröst University

Hefur þú prófað ChatGPT?

Abstract

dc:description.abstract

Gervigreind! Orðið vekur ýmist óhug eða áhuga hjá fólki og þegar fjölmiðlar útlista áhyggjum skóla um allan heim að trúverðugleiki menntunar sé í húfi vegna málgreindar spunagreindarinnar ChatGPT ræður hræðslan ríkjum. Gripið var í að setja próf upp sem munnleg próf í ýmsum Skandinavískum skólum og efast var um skil nemenda á heimaprófum og verkefnum. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna notkun nemenda, á efri menntastigum á Íslandi, á ChatGPT sem aðstoð við nám. Einnig var skoðað hversu mikið traust nemendur hafa á svörum og tillögum spunagreindarinnar ásamt skoðun nemenda á aukinni fræðslu þess. Rannsakað var með megindlegri rannsóknaraðferð og send út spurningakönnun á nemendur háskóla og framhaldsskóla. Niðurstöður sýndu fram á fjölbreytta notkun en þó aðallega til upplýsingaöflunar, þankahríð (e.brainstorming) og aðstoð við ýmsa verkefnavinnu. Einnig sýndu niðurstöður að nemendur virtust annað hvort bera mikið traust til ChatGPT eða ekki hafa næga þekkingu til að svara af eða á. Þorsti nemenda er í aukna fræðslu á því hvernig notkun geti verið áhrifarík sem aðstoð við nám og má álykta að nemendur vilji að framtíðarnám og kennsla beri með sér tæknina að vopni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Katrín Pálsdóttir 1980-
Advisor dc:description.advisor
  • Hanna Kristín Skaftadóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/46314

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Katrín Pálsdóttir 1980-. Hefur þú prófað ChatGPT?. 2024. https://hdl.handle.net/1946/46314