Back to search

Bifröst University

Þverfagleg samvinna í stafrænum skapandi iðnaði : hvernig geta stjórnendur hlúið að skilvirkni í þverfaglegri samvinnu?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessu lokaverkefni var lagt upp með að rannsaka hvernig stjórnendur geta hlúið að skilvirkni í samvinnu þverfaglegra teyma í stafrænum skapandi iðnaði. Gert er grein fyrir afmörkun og skilgreiningu stafræns skapandi iðnaðar sem stuðst var við í þessari rannsókn. Farið er yfir fræði um þverfaglega samvinnu og áhrifaþætti á við mótun þekkingarvistkerfis sem nær yfir hugtök eins og þekkingarsamþættingu í samvinnu, gleypnigetu einstaklinga, T-laga og M-laga færni hvað varðar dreifingu og dýpt þekkingar og stefnumótandi ferli einslykkja, tvílykkja og annarsstigs náms við innleiðingu þessara hugtaka í starfi. Að auki var litið á birtingarmynd þverfaglegrar samvinnu í tæknigeiranum og var sérstaklega litið til samvinnu listamanna og tæknimanna vegna andstæðu þeirra sérsviða. Sérstök áhersla var lögð á að gera grein fyrir áhrifum kynjaðra staðalímynda á skilvirkni samstarfs. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að stjórnendur geti hlúið skilvirkni í þverfaglegri samvinnu með því að vera frumkvöðlar samvinnunnar, skapa aðstæður fyrir teymismeðlimi til að víkka þekkingargrunn sinn og móta umhverfi sem styðji við samþættingu sérþekkingar og markvissri miðlun þekkingar á milli sérsviða. Niðurstöður rannsóknarinnar benda einnig á að skipulagðar aðferðir eða nálganir við ferli samþættingu þekkingar geti komið til með að auka skilvirkni þverfaglegrar samvinnu enn frekar. Niðurstöðurnar benda til þess að aukinn skilningur og meðvitund á áhrifum kynjaðra staðalímynda í samvinnuferli geti aukið fullnýtingu þeirrar þekkingar sem til staðar er í teymum og þar með aukið skilvirkni samvinnunnar enn frekar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Valgeir Jakobsson 1995-
Advisor dc:description.advisor
  • Bergsveinn Þórsson 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/46327

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Valgeir Jakobsson 1995-. Þverfagleg samvinna í stafrænum skapandi iðnaði : hvernig geta stjórnendur hlúið að skilvirkni í þverfaglegri samvinnu?. 2024. https://hdl.handle.net/1946/46327