Bifröst University
Mat dómstóla á skilyrðum neyðarvarnar skv. 12. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um mat dómstóla á neyðarvörn samkvæmt núgildandi lagaramma. Ákvæði 12. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 (hgl.) felur í sér að verk sem unnið er í neyðarvörn er refsilaust að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, sem tiltekin eru í ákvæðinu. Umrædd skilyrði fela í sér mikið svigrúm til mats hverju sinni og því í höndum dómstóla að meta hvort skilyrðum 12. gr. hgl. um refsileysi sé fullnægt. Markmiðið með ritgerðinni er að kanna hvernig matinu er háttað hjá íslenskum dómstólum. Megináhersla er lögð á dómaframkvæmd til þess að fá innsýn í það hvernig matinu er háttað þegar kemur að slíkum málum. Eftir rannsókn á þeim dómum, sem fjallað er um í ritgerðinni, komst höfundur að þeirri niðurstöðu að mat dómstóla á neyðarvörn skv. 12. gr. hgl. getur oft á tíðum verið flókið. Dómstólar virðast allt að einu vanda vel til verka og nýta öll þau gögn sem málið varðar, hverju sinni. Í íslenskri dómaframkvæmd er ekki algengt að neyðarvarnarverk sé dæmt refsilaust á grundvelli 12. gr. hgl. og hefur það einungis gerst örfáum sinnum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ragnheiður Einarsdóttir 1993-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Unnar Steinn Bjarndal Björnsson 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/48275