Bifröst University
Gervigreind í lánveitingum : hver eru viðhorf starfsmanna lánastofnana til mögulegs ávinnings af notkun gervigreindar við að bæta skilvirkni í lánaferlinu og auka virði útlána?
Abstract
dc:description.abstractLánastofnanir eru lykilþáttur í þróun hagkerfisins og eru sífellt að leita leiða til að auka skilvirkni og hagkvæmni með tæknivæðingu. Erlendar lánastofnanir hafa í auknu mæli nýtt gervigreind til að bæta sína starfsemi og auka skilvirkni. Einungis fáar rannsóknir hafa verið gerðar varðandi efnið á Íslandi og þess vegna vill rannsakandinn kanna hvort hægt væri að nota gervigreindina einnig í lánveitingum og hvort starfsmenn innan lánastofnanna telji að hún nýtist sem gott hjálpartæki í lánveitingum. Markmið rannsóknarinnar er að kanna viðhorf starfsmanna lánastofnanna á notkun gervigreindar við lánveitingar á Íslandi til að auka skilvirkni lánaferlisins og virði útlána. Lögð var fram rannsóknarspurningin „Hver eru viðhorf starfsmanna lánastofnana til mögulegs ávinnings af notkun gervigreindar við að bæta skilvirkni í lánaferlinu og auka virði útlána?“ sem höfð var í huga í gegnum allt rannsóknarferlið. Til að svara rannsóknarspurningunni var notast við megindlega rannsóknaraðferð og lögð var fram spurningakönnun fyrir starfsmenn lánastofnanna sem tengdust útlánum á einhvern hátt. Fræðiyfirlitið veitir innsýn í hvað gervigreind er og hvernig hún er notuð í daglegu lífi og viðskiptum. Einnig verður fjallað um tæknina á bakvið gervigreindina og í hvaða atvinnugeirum hún hefur verið tekin upp. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að flestir starfsmenn eru jákvæðir gagnvart notkun gervigreindar og telja að hún geti bætt skilvirkni og virði lána. Þeir sjá möguleika á að nýta gervigreind til að gera lánaferlið skilvirkara, auk þess sem þeir telja hana geta hjálpað við áhættustjórn og aukið öryggi gegn svikum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Thelma Sif Sófusdóttir 2002-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Erlendur Ingi Jónsson 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/48291