Bifröst University
Persónuvernd : ábyrgð og skyldur lögaðila og stjórnenda við rekstur stofnana- og fyrirtækjavefja með áherslu á netöryggi.
Abstract
dc:description.abstractMeginefni þessarar ritgerðar snýr að löggjöf um persónuvernd með áherslu á netöryggi. Markmið hennar er að leitast við að varpa ljósi á ábyrgð og skyldur lögaðila og stjórnenda við rekstur stofnana- og fyrirtækjavefja. Helstu hugtök sem fjallað er um eru ábyrgðaraðili, ábyrgðarskylda, lögmætir hagsmunir, netöryggi, persónusnið, persónuupplýsingar, samþykki og vinnsla. Höfundur byggir á lagalegri dogmatískri rannsóknaraðferð og eru viðfangsefni rannsóknarinnar skoðuð með hliðsjón af lögum, lögskýringargögnum, dómum og úrskurðum og skrifum fræðimanna. Reifaðir eru tuttugu úrskurðir Persónuverndar með það að markmiði að útskýra löggjöfina og túlkun hennar enn frekar. Einnig eru 186 úrskurðir evrópskra eftirlitsstofnana skoðaðir með tilliti til forspárgildis. Þá eru 12 íslenskar vefsíður skoðaðar út frá meginreglum persónuverndarlaga. Niðurstöður sýna að vafrakökur og önnur rakningartækni eru helsta áhyggjuefnið þegar kemur að veflausnum og meðferð persónuupplýsinga og að vefsíðurekandi ber höfuðábyrgð á slíkri vinnslu. Telur höfundur brýnt að Persónuvernd efli fræðslu og eftirlit á þessu sviði, hlutaðeigandi aðilum til heilla.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Selma Hrönn Maríudóttir 1969-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Ari Karlsson 1979-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 8Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/48302