Bifröst University
Allir í bátana! „Langtímaáhrif eldgossins í Heimaey árið 1973 á þau sem upplifðu hamfarirnar sem börn“
Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknarinnar var að kanna upplifun og afleiðingar á þau sem voru börn þegar eldgosið átti sér stað í Heimaey 1973 og þá sérstaklega upplifun þeirra af endurreisninni, reynslunni af þeim úrræðum sem gripið var til, eða úrræðum sem skorti, með nýrri nálgun þar sem hún er sú fyrsta sem rannsakar þennan þátt áfallastjórnunar vegna hamfaranna í Heimaey 1973. Notuð er lýsandi megindleg rannsókn og skoðaður er einn hópur og samanburður innan hans. Úrtakið er allir einstaklingar sem voru á aldrinum 6 til 16 ára og voru með lögheimili í Vestmannaeyjum þegar gos hófst þann 23. janúar 1973. Lagðir voru fyrir spurningalistar um áhrif atburðarins á líf þeirra í dag (Impact of event scale), mat á félagslegum stuðningi í kjölfar hamfaranna (crisis support scale), spurningar um lífsánægju (satisfaction with life scale) og að lokum bakgrunnspurningar, spurningar tengdar rýmingunni frá Heimaey og að lokum ein opin spurning. 422 tóku þátt í rannsókninni og skiptist hópurinn þannig að karlar voru 149 og konur 238. Niðurstöður rannsóknar voru á þá leið að enn í dag glíma Vestmannaeyingar við afleiðingar eldgossins. Lífsánægja mældist lítisháttar og niðurstöður sýndu að 69,4% svarenda lýsa langímaáhrifum af atburðinum á líf þeirra í dag og af þeim lýsa 3.8% miklum áhrifum af atburðinum. Þeir svarendur sem upplifa meiri lífsánægju fundu fyrir minni afleiðingum af atburðinum á líf sitt í dag. Þeir sem finna fyrir meiri lífsánægju upplifðu meiri stuðning í kjölfar hamfaranna. Niðurstöður sýndu einnig að því fleiri börn sem þekktust og voru saman í móttökuskóla, því meiri félagslegan stuðning upplifðu þau. Niðurstöður sýndu að eitt af hverjum fjórum börnum lentu í einelti eða ofbeldi vegna þess að þau voru frá Vestmannaeyjum og þau börn upplifðu minni lífsánægju, atburðurinn hafði meiri áhrif á líf þeirra í dag og þau fundu fyrir minni lífsánægju.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristín Eva Sveinsdóttir 1974-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Ásthildur Elva Bernharðsdóttir 1960-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 8Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/48303