Back to search

Bifröst University

Notkun ábyrgðaraðila á eftirlitsmyndavélum og kröfur persónuverndarlaga þar að lútandi.

Abstract

dc:description.abstract

Í kjölfar ákvörðunar Persónuverndar um að sekta Háskóla Íslands m.a. vegna skorts á fræðslu vegna rafrænnar vöktunar og umfjöllunar fréttaskýringaþáttarins Kveiks ákvað höfundur að rannsaka hvort fyrirtæki og opinberar stofnanir væru að uppfylla kröfur persónuverndarlaga um fræðslu vegna rafrænnar vöktunar með eftirlitsmyndavélum. Í ljósi þess að Háskóli Íslands lét hjá líða að gæta stjórnarskrárvarinna grundvallarréttinda þeirra sem sættu rafrænni vöktun með eftirlitsmyndavélum vakti þetta viðfangsefni áhuga höfundar. Höfundur ræddi við þrettán mismunandi ábyrgðaraðila og heimsótti tuttugu fyrirtæki og stofnanir í viðleitni sinni við að varpa ljósi á álitaefnið. Í ritgerðinni fjallar höfundur almennt um persónuvernd og þau lög og reglur sem við eiga ásamt því að skilgreina rafræna vöktun og fjalla um áhrif hennar á grundvallarréttindi og frelsi einstaklingsins. Höfundur fjallar einnig stuttlega um áskoranir á sviði persónuverndarreglna ásamt því að fara yfir úrlausnir Persónuverndar s.l. fjögurra ára með tilliti til rafrænnar vöktunar með eftirlitsmyndavélum. Þá fór höfundur einnig yfir nokkrar úrlausnir evrópskra persónuverndarstofnana til þess að átta sig á því hvort mögulega væri misræmi í framkvæmd þeirra og hinnar íslensku Persónuverndar. Að lokum fjallaði höfundur um niðurstöður rannsóknarinnar og ályktaði um mögulegar ástæður þeirra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Friðjón Björgvin Gunnarsson 1976-
Advisor dc:description.advisor
  • Ari Karlsson 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49160

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Friðjón Björgvin Gunnarsson 1976-. Notkun ábyrgðaraðila á eftirlitsmyndavélum og kröfur persónuverndarlaga þar að lútandi.. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49160