Bifröst University
Risaeðlusýn á réttindi leikara: Hver er þörfin fyrir nándarþjálfa íslenskri kvikmyndagerð?
Abstract
dc:description.abstractÞetta ritverk rannsakar þá miklu þörf fyrir nándarþjálfa sem og áhrif þeirra í íslenskum kvikmyndaiðnaði. Áhersla á hvernig fagaðilar stuðla að öryggi leikara, virðingu fyrir mörkum og að samþykki sé fylgt eftir í nánum senum. Með eigindlegri aðferðafræði byggir rannsóknin á hálf opnum viðtölum við fagfólk í iðnaðinum þar á meðal leikstjóra, leikara (útskrifaðir nemendum úr Listaháskóla Íslands), verktaka í kvikmyndaiðnaðinum og eina nándarþjálfarann á Íslandi. Viðtölin voru hönnuð til að komast að persónulegri reynslu viðmælanda og þeim áskorunum sem þau hafa upplifað þegar það er meðhöndlað nánar senur. Aðferðirnar gera ráð fyrir ítarlegri könnun á einstökum viðhorfum á meðan þema greiningin varpar ljósi á endurtekin atriði í tengslum við valdaójafnvægi, mörk og takmarkanir sem nándaþjálfi verður fyrir. Niðurstöðurnar sýna að nándarþjálfarar eru nauðsynlegir til að koma á öruggu og gagnsæju umhverfi á tökustað. Sérstaklega þegar atriði fela í sér nekt eða herma kynlíf. Niðurstöðurnar benda einnig til þess að þörf sé á að staðla hlutverk nándarþjálfa í samþættingu við alþjóðlega staðla. Sérstaklega þar sem íslensk kvikmyndagerð fer hratt vaxandi. Rannsókninni lýkur með því að mæla fyrir samþættingu nándarþjálfa í kvikmyndakennslu til að takast á við gallana í núverandi starfsháttum og stuðla að menningu sem setur vellíðan leikara og allra þátttakenda í forgang. Rannsóknin er því dýrmæt innsýn í vaxandi atvinnugrein og undirstrikar mikilvægi þess að fagmennska sé meðhöndluð í nánum senum í kvikmyndagerð. Lykilhugtök: #MeToo, mörk, nándarþjálfi, nánar senur, samþykki og öryggi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Elín Pálsdóttir 1998-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Sigrún Lilja Einarsdóttir 1974-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49161