Back to search

Bifröst University

Almannatengsl og forsetakosningar - Aðkoma almannatengla að framboðum í forsetakosningunum 2024.

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi var unnin á haustönn 2024 þegar forsetakosningarnar eru enn í fersku minni og Halla Tómasdóttir nýkjörin forseti Íslands hefur rétt komið sér fyrir á Bessastöðum. Von höfundar er að ritgerðin veki áhuga lesenda og veiti innsýn í hlutverk almannatengla í íslenskri stjórnmálabaráttu. Ritgerðin fjallar um aðkomu almannatengla að forsetaframboðum í kosningunum 2024 og skoðar hvort og að hvaða leyti framboðin leituðu til almannatengla. Í því skyni voru tekin viðtöl við fjóra einstaklinga sem komu að forsetaframboðum þar sem leitast var við að fá fram sjónarmið þeirra um þátttöku almannatengla í kosningabaráttunni. Til að auka skilning á starfi almannatengla var einnig rætt við almannatengil sem deildi innsýn í störf sín og mögulega aðkomu almannatengla að forsetakosningum á Íslandi. Viðtölin voru síðan greind með þemagreiningu til að varpa ljósi á þau svið þar sem sérþekking almannatengla getur komið að gagni, bæði í krísustjórnun og ráðgjöf. Byggt er á fræðilegum heimildum sem tengjast almannatengslum, fjölmiðlum og ýmiss konar kosningabaráttu auk efnis sem nýtist til að skoða ímyndarsköpun og samskipti frambjóðenda. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að almannatenglar hafi ótvíræð áhrif á forsetaframboð þó að aðkoma þeirra sé misjöfn eftir framboðum. Almannatenglar eru taldir mikilvægir meðlimir í framboðsteymum þar sem sérþekking þeirra kemur að góðu gagni á ýmsum sviðum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hrund Biering Valsdóttir 1990-
Advisor dc:description.advisor
  • Eiríkur Bergmann Einarsson 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49165

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hrund Biering Valsdóttir 1990-. Almannatengsl og forsetakosningar - Aðkoma almannatengla að framboðum í forsetakosningunum 2024.. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49165