Back to search

Bifröst University

Viðskiptagreind og sjálfvirkni í fjármálastjórn: Áhrif sjálfvirks aðstoðarmanns á fjármáladeildir fyrirtækja

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um áhrif sjálfvirks aðstoðarmanns, eins og stafræns vinnuafls, á fjármáladeildir fyrirtækja. Markmið rannsóknarinnar er að greina hvort innleiðing sjálfvirkni geti leitt til kostnaðarhagræðingar og aukinnar framleiðni með því að draga úr handvirkri vinnu. Verkefnið byggir á viðtölum við starfsmenn sem hafa reynslu af sjálfvirknilausnum, og úttekt á áhrifum þess á vinnuflæði og upplifun starfsmanna. Niðurstöður benda til þess að sjálfvirknivæðing stuðli að aukinni skilvirkni í ferlum, minnki mannleg mistök og spari tíma sem nýtist í flóknari og meira skapandi verkefni. Þrátt fyrir þessa kosti fylgja áskoranir, svo sem þörfin fyrir þjálfun og aðlögun starfsfólks að nýjum tæknihlutverkum. Rannsóknin leggur áherslu á að fyrirtæki þurfi að huga vel að innleiðingarferlinu og samræma það við stefnumótandi markmið til að hámarka ávinning sjálfvirknivæðingar. Ritgerðin veitir fyrirtækjum innsýn í hvernig sjálfvirkt stafrænt vinnuafl getur styrkt fjármálastjórnun og dregið úr rekstrarkostnaði. Hún leggur einnig grunn að frekari rannsóknum á því hvernig sjálfvirkni og viðskiptagreind geta stuðlað að þróun og nýsköpun í fjármálastjórnun. Lykilhugtök: ferlastjórnun, framleiðni, gervigreind, hlutverk starfsmanna, sjálfvirknivæðing, tækniinnleiðing, tímasparnaður, upplifun notenda, viðskiptagreind.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jórunn S, Gröndal, 1982-
Advisor dc:description.advisor
  • Húni Jóhannesson 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49168

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jórunn S, Gröndal, 1982-. Viðskiptagreind og sjálfvirkni í fjármálastjórn: Áhrif sjálfvirks aðstoðarmanns á fjármáladeildir fyrirtækja. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49168