Back to search

Bifröst University

Ímynd ChitoCare: "Náttúrulegt undur úr hafinu"

Abstract

dc:description.abstract

Í rannsókn þessari verður leitast við að svara rannsóknarspurningunni: „Hver er ímynd vörumerkisins ChitoCare?“ Ímynd vörumerkis er hvernig neytandinn skynjar og sér vörumerkið og var markmið rannsóknarinnar að skoða ímynd húðvörumerkisins ChitoCare. Allar vörur ChitoCare eiga það sameiginlegt að innihalda lífvirka trefjaefnið kítósan sem gagnast fólki vel með einstakri næringu og vernd að utan sem að innan. Í ritgerðinni verður farið yfir þá tólf ímyndarþætti sem ChitoCare leggur áherslu á sem rannsakandi tók saman frá eigindlegri rannsókn í formi hálf-opins viðtals við Vigfús Rúnarsson, markaðs- og sölustjóra vörumerkisins. Einnig verða niðurstöður kynntar úr megindlegri rannsókn um vitund, þekkingu og þarfir þátttakenda á vörumerkinu og vali þeirra á húðvörum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að ímynd ChitoCare sé að vörumerkið er hrein íslensk afurð sem gagnast fólki vel með græðandi, rakagefandi og filmumyndandi vörum sem hjálpa fólki við almenna húðheilsu. Flestir þátttakendur spurningakönnunarinnar þekktu vörumerkið ChitoCare og meirihluti þeirra sem höfðu notað vörurnar líkaði mjög vel við þær. Af þeim tólf ímyndarþáttum sem komu fram í eigindlegu rannsókninni var fólk aðallega að leitast eftir gæðum og að vörurnar væru ofnæmisprófaðar. Ímyndarþættirnir kítósan og Ísland voru þeir þættir sem fólk tengdi minnst við þegar kemur að vali húðvara og gott tækifæri fyrir vörumerkið að kynna betur þetta merkilega innihaldsefni, kítósan. Í heildina litið var meðaltal ímyndarþáttanna hátt og má því draga þá ályktun að ímynd vörumerkisins ChitoCare sé góð út frá þeim niðurstöðum sem komu fram úr megindlegu- og eigindlegu rannsókninni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Emilíanna Valdimarsdóttir 1994-
Advisor dc:description.advisor
  • Atli Björgvinsson 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49188

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Emilíanna Valdimarsdóttir 1994-. Ímynd ChitoCare: "Náttúrulegt undur úr hafinu". 2025. https://hdl.handle.net/1946/49188