Bifröst University
„Við erum meðferðartækið“ Upplifun meðferðaraðila á gæðum þjónustu á göngudeildum geðdeilda
Abstract
dc:description.abstractFyrri rannsóknir sýna að góð þjónusta á göngudeildum geðdeilda byggir á gagnreyndri þekkingu með áherslu á einstaklingsmiðaða meðferð sem hægt er að meta með tilliti til árangurs. Rannsóknir um gæði þjónustu á göngudeildum geðdeilda miða að því að greina hvernig sjónarhorn skjólstæðinga og meðferðaraðila geta stuðlað að úrbótum á þjónustunni. Sjónarhorn þessara hópa getur verið misjafnt þar sem meðferðaraðilar beina athyglinni að gagnreyndum aðferðum, skipulagi og álagi en skjólstæðingar að persónulegri þjónustu, aðgengi og stuðningi. Hér á landi hafa komið fram vísbendingar um skort á sýnilegri og markvissri stefnu í geðheilbrigðisþjónustu sem oft skilar sér í óljósri eða ómarkvissri þjónustu. Markmið rannsóknarinnar er að kanna upplifun meðferðaraðila á gæðum þjónustu á göngudeildum geðdeilda og kortleggja hugmyndir þeirra að úrbótum út frá tveimur rannsóknarspurningum: „Hver er upplifun meðferðaraðila á gæðum þjónustunnar sem veitt er á göngudeildum geðdeilda?“ og „Hvaða leiðir sjá meðferðaraðilar til úrbóta þegar kemur að þjónustunni?“ Eigindleg aðferð var notuð með hálf-opnum viðtölum og tilgangs- og snjóboltaúrtaki við val á sjö þátttakendum, sem eru heilbrigðismenntaðir með að minnsta kosti tveggja ára reynslu af meðferðarstörfum á göngudeildum geðdeilda. Niðurstöðurnar koma fram í þemum sem snúa að: meðferðaraðilanum sem meðferðartæki, stuðningi til eflingar skjólstæðinga, flæði og samfellu í þjónustu; upplifun meðferðaraðila, umhverfi þjónustunnar og áhrifum á meðferð, þjónustuferli og tengsl við samfélagið sem og að eflingu lífsgæða og mikilvægi gæðamenningar og úrbóta. Niðurstöðurnar gefa vísbendingar um að teymisvinna, traust meðferðarsamband og einstaklingsmiðuð þjónusta efli fagmennsku, sjálfstæði skjólstæðinga og gæði þjónustu. Hindranir eins og biðlistar, ófullnægjandi húsnæði og skortur á úrræðum veikja samfellu þjónustu. Lögð er áhersla á að bæta fjarþjónustu, fjölga starfsfólki, efla handleiðslu og skapa sterkari gæðamenningu. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að styðja við þróun geðheilbrigðisþjónustu með því að nýta reynslu og upplifun meðferðaraðila sem lykilþátt í framþróun þjónustunnar. Reynsla meðferðaraðila getur verið gagnlegt framlag til stefnumótunar og úrbóta innan geðheilbrigðisþjónustu. Lykilhugtök: geðheilbrigðisþjónusta, meðferðaraðili, skjólstæðingur, teymisvinna, gæðamenning, lífsgæði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ragnheiður Reykjalín Magnúsdóttir 1977-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Sigrún Gunnarsdóttir 1960-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49198