Bifröst University
Er þörf fyrir þjónustuframboð Vojago á fræðslumarkaði? Markaðsáætlun: Vojago - Þinn ferðafélagi í stafrænum heimi
Abstract
dc:description.abstractÍ þessu verkefni er unnið út frá þeirri tilgátu að hröð þróun stafrænnar, og nú síðast gervigreindrar, tækni undanfarin ár hafi myndað gjá á milli aðgengis að upplýsingatækni- og samskiptaauðlindum, og getu einstaklinganna í samfélaginu til að nota þær. Þetta hafi leitt til þess að eftirspurn hefur myndast eftir vinnuafli með stafræna hæfni sem núverandi framboð nær ekki að anna. Þannig hafi jafnframt myndast eftirspurn eftir stafrænni hæfniþjálfun sem núverandi aðilar á fræðslumarkaði á Íslandi eru ekki að sinna nógu vel. Til að mæta þörfinni eftir stafrænni hæfniþjálfun hefur höfundur þessa verkefnis þróað sprotaverkefni undir heitinu Vojago og er markaðsáætlun þess kynnt hér. Tilgangur verkefnisins er að greina markhópa Vojago og komast að því hvort raunveruleg þörf sé til staðar fyrir þjónustuframboð frá nýjum aðila á fræðslumarkaði. Markmiðið er að afla nægilegra gagna til að geta tekið vel upplýsta ákvörðun um hvort það borgi sig að þróa Vojago frekar og innleiða vörumerkið á markað, eða hvort segja ætti staðar numið hér. Í þeim tilgangi var framkvæmd megindleg rannsókn með spurningakönnun sem lögð var fyrir markhópana aðallega í gegnum samfélagsmiðla. Niðurstöðurnar eru túlkaðar með tölfræðilegri úrvinnslu og settar fram með lýsandi tölfræði. Þó að ekki takist í markhóparannsókninni að sýna fram á tilvist stafrænnar gjár á Íslandi af völdum tilkomu gervigreindar, sýna niðurstöður svo ekki verður um villst að eftirspurn eftir stafrænni hæfniþjálfun er sannarlega til staðar, þá sérstaklega á meðal einstaklinga á vinnumarkaði, fagaðila og sérfræðinga. Eru kennarar fjölmennasti hópurinn sem telur sig þurfa og vilja stafræna hæfniþjálfun og er tilbúinn til að greiða fyrir hana. Þá sýnir samkeppnisgreining að þó samkeppni sé til staðar á fræðslumarkaði um stafræna hæfniþjálfun, þá er hún hvorki það mikil né beinskeytt, að nýr aðili með skýra stefnu og viðeigandi þjónustuframboð ætti ekki að geta skipað sér sess. Það er niðurstaða þessa verkefnis að viðskiptahugmyndin um Vojago sé ekki aðeins mjög viðeigandi í núverandi landslagi heldur mjög aðkallandi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigrún Birna Einarsdóttir 1974-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49214