Back to search

Bifröst University

Fjármálahegðun ungs fólks.

Abstract

dc:description.abstract

Ungt fólk í dag stendur frammi fyrir erfiðum fjármálaákvörðunum, svo sem háum vöxtum og hækkandi framfærslukostnaði. Rannsókn þessi miðar að því að kanna fjármálahegðun ungs fólks á Íslandi, með áherslu á áhrif fyrirmynda og áhrifavalda á ákvarðanir þeirra í fjármálum. Í því sambandi er mikilvægt að skilja þá þætti sem geta haft áhrif á fjármálahegðun þess þar sem ákvarðanir í fjármálum á þessum tímum geta skipt sköpum hvað varðar lífsgæði þess til frambúðar. Í rannsókninni var gögnum safnað með megindlegri aðferðafræði í formi spurningakönnunar þar sem 150 svarendur á aldrinum 18-30 ára voru til skoðunar og út frá þeim gögnum mótuðu niðurstöður rannsóknarinnar. Rannsóknarspurning verkefnisins var: „Eru tengsl á milli fjármálahegðunar ungs fólks og hvernig fyrirmynda og/eða áhrifavalda það horfir til?“ Unnið var með sjálfboðaliða- og hentugleikaúrtak og fór úrvinnsla á gögnum og tölfræðilegum tilgátuprófum fram í Excel. Helstu niðurstöður benda til þess að foreldrar og/eða fjölskyldumeðlimir spili stórt hlutverk sem fyrirmyndir þegar kemur að fjármálum en þeir sem eiga slíkar fyrirmyndir eru einnig líklegri til að stunda betri fjármálahegðun en þeir sem eiga það ekki. Áhrifavaldar á samfélagsmiðlum voru taldir hafa áhrif á fjármálahegðun svarenda, þá sérstaklega hvað neyslu varðar, en voru sjaldan taldir hafa jákvæð áhrif á fjármálahegðun. Einnig benda niðurstöðurnar til þess að ekki sé mikill marktækur munur á milli kynja þegar kemur að því að eiga fyrirmyndir hvað fjármál varða. Þær benda þess vegna til jákvæðrar þróunar í átt að jafnrétti kynjanna hvað fjárhagslega þátttöku varðar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóel Jens Guðbjartsson 2002-
Advisor dc:description.advisor
  • Hanna Kristín Skaftadóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49220

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóel Jens Guðbjartsson 2002-. Fjármálahegðun ungs fólks.. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49220