Bifröst University
Sala á fasteign - Hvað ræður vali seljenda á því hvaða fasteignasölu og/eða fasteignasala þeir kjósa til þess að selja fasteign sína?
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um hvað ræður vali fólks á fasteignasölu og/eða fasteignasala þegar kemur að því að setja eign þeirra á sölu. Rannsóknarspurningin sem leitast var eftir að svara var: "Hvað ræður vali seljenda á því hvaða fasteignasölu og/eða fasteignasala þeir kjósa til þess að selja fasteign sína?” Rannsókn var gerð með notkun á megindlegri rannsóknaraðferð þar sem lagður var spurningalisti fyrir einstaklinga sem sett höfðu fasteign á sölu á tímabilinu 15. febrúar árið 2023, til og með 15. febrúar árið 2024. Spurningalistinn var settur upp til þess að auðvelda greiningu á því hvað það er sem fær einstaklinga til þess að velja x fasteignasölu og/eða sala til þess að selja eign sína umfram annað það sem er í boði á markaðnum. Um leið og leitað var svari við rannsóknarspurningunni fengust upplýsingar um þau atriði sem þeim sem tóku könnunina fannst skipta máli önnur en það sem reyndist vera eiginlegt svar við rannsóknarspurningunni. Markmið rannsóknarinnar var því að svara rannsóknarspurningunni um leið og að komast að því hvaða þættir geta verið áhrifaþættir á val einstaklinga. Fjallað var um aðrar rannsóknir sem gerðar hafa verið á sama viðfangsefni en niðurstöður þeirra voru síðan notaðar sem viðmið og aðstoð við gerð spurningalistans sem notaður var í rannsókninni. Niðurstöður rannsóknarinnar voru síðan bornar saman við niðurstöður rannsóknar sem framkvæmd var árið 2014 á sama viðfangsefni. Fræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar tók til fræðagrunns markaðsfræðinnar sem og til fræðagrunns fasteignasöluviðskipta. Í fræðagrunni markaðsfræðinnar er að finna upplýsingar um vörumerki, neytendahegðun, miðla, markaðsráða, miðaða markaðssetningu, kaupákvörðunarferli og virðiskeðju Porter sem dæmi. Allt eru þetta atriði sem skipta máli þegar kemur að því að selja eitthvað og eiga því einstaklega vel við á fasteignasölumarkaði. Í fræðagrunni fasteignasöluviðskipta er síðan að finna upplýsingar um, meðal annars, lög og reglur sem gilda um sölu fasteigna, söluþóknun, orðspor og fyrirkomulag við sölu á fasteign. Að lokum verður farið yfir niðurstöður þessarar rannsóknar, rannsóknarmarkmiðum sem og rannsóknarspurningu verður svarað.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Irpa Fönn Hlynsdóttir 1997-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Ragnar Már Vilhjálmsson 1969-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49223