Back to search

Bifröst University

Ósýnileg hendi almenningsálits. Hlutverk samfélagsmiðla í kosningaherferðum á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Vinsældir og notkun samfélagsmiðla hefur vaxið jafnt og þétt. Miklar breytingar hafa átt sér stað varðandi hvernig fólk hefur samskipti sín á milli og hvernig almenningur nálgast fréttir og fróðleik. Einnig hafa fjölmiðlar og fyrirtæki aðlagað sig breyttu landslagi og tileinkað sér nýjar aðferðir með tilkomu nýrra miðla. Markmið þessarar ritgerðar er að skoða notkun samfélagsmiðla í stjórnmálum, hvort þessi nýja tækni hafi breytt kosningaherferðum á Íslandi. Með eigindlegri rannsóknaraðferð er kannað í framhaldi hvort stjórnmálaflokkar geti nýtt sér samfélagsmiðla til að móta almenningsálit á Íslandi með það í huga að hafa áhrif á kjósendur. Rannsóknin var framkvæmd með því að fá stjórnmála- og markaðsfólk með mikla þekkingu á kosningaherferðum til að svara spurningum um samfélagsmiðlanotkun og hvort skipti meira máli - málefni eða markaðssetning. Hvort hægt væri að hafa áhrif á hug kjósenda, samfélagsumræður og almenningsálit með notkun samfélagsmiðla í kosningaherferðum. Stuðst var við heimildir úr bókum, greinum og af vefsíðum sem styðja við rannsóknarefnið og skýra það frekar. Þátttakendur voru sammála um að samfélagsmiðlar væru gríðarlega öflugur miðill til að koma skilaboðum áleiðis, ódýrir miðlar sem hefðu aðgengi að gríðarlegum fjölda fólks. Með því að minna reglulega á sig væri hægt að viðhalda stöðugri og jákvæðri ímynd og samfélagsmiðlar gefa stjórnmálafólki nýtt verkfæri til að eiga í samskiptum við kjósendur, miðla stefnuáherslum og sýna á sér persónulegar hliðar. En hvað ber að varast, hvað með upplýsingaóreiðu, falsfréttir, bergmálshella og áreiti, hverjir eru kostir og kallar við notkun samfélagsmiðla í stjórnmálum?

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnsteinn Aðaldal Brynjarsson 1982-
Advisor dc:description.advisor
  • Magnús Árni Skjöld Magnússon 1968-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49226

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnsteinn Aðaldal Brynjarsson 1982-. Ósýnileg hendi almenningsálits. Hlutverk samfélagsmiðla í kosningaherferðum á Íslandi. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49226