Bifröst University
Upplifun og áhrif þjónustugæða í fjarnámi við Háskólann á Bifröst: Er samræmi á milli viðhorfa starfsfólks skólans og upplifunar nemenda?
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari rannsókn var leitast við að varpa ljósi á viðhorf nemenda við Háskólann á Bifröst á þjónustu skólans og greina þá þætti sem helst hafa áhrif á hvernig þeir upplifa hana. Rannsóknin beindist að tæknilegum, félagslegum og fræðilegum þáttum þjónustunnar, auk tengsla nemenda við kennara og starfsfólk. Notast var við blandaða aðferðafræði þar sem bæði megindleg og eigindleg gögn voru greind. Spurningakönnun var lögð fyrir alla nemendur skólans og bárust 221 svör. Jafnframt voru tekin hálfstöðluð viðtöl við lykilstarfsfólk sem sinnir kennslu og þjónustu við nemendur. Helstu niðurstöður sýna að nemendur eru almennt ánægðir með þjónustuna, sérstaklega með lotukerfið, skipulag og sveigjanleika námsins. Mikilvægi kennara, góð samskipti og aðgengi að kennsluefni höfðu einnig veruleg áhrif. Þeir sem höfðu íhugað að hætta í námi bentu einkum á of mikið álag, óskýrt skipulag og takmarkað aðgengi að stuðningi sem helstu áskoranir. Nemendur sem sækja staðlotur reglulega upplifa sterkari tengsl við skólasamfélagið en þeir sem gera það sjaldan eða aldrei. Viðtölin staðfesta að starfsfólk hefur góða innsýn í þarfir nemenda, þó að smávægileg frávik í skipulagi og samskiptum virðist hafa meiri áhrif en starfsfólk geri sér almennt grein fyrir. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi einstaklingsmiðaðrar og samræmdrar þjónustu í fjarnámi og getur nýst við umbótastarf innan skólans og þróun fjarnáms á háskólastigi Íslandi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hlynur Finnbogason 1971-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Bjarni Heiðar Halldórsson 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50672