Abstract
dc:description.abstractGeðsjúkdómar og fólk sem glímir við þá verða oft fyrir fordómum og útskúfun í samfélaginu. Fjölmiðlar gegna lykilhlutverki í mótun viðhorfa almennings og því vaknaði áhugi höfundar á því hvernig fjölmiðlaumfjöllun um geðsjúkdóma hefur áhrif á samfélagið. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort og hvernig fjölmiðlar hafi áhrif á viðhorf almennings gagnvart geðsjúkdómum og þeim sem með þá eru. Í ritgerðinni var beitt eigindlegri rannsóknaraðferð og tekin voru fjögur hálfopin viðtöl við einstaklinga sem hafa faglega reynslu af viðfangsefninu. Viðtölin leiddu í ljós að þátttakendur upplifðu að fjölmiðlar gætu bæði stuðlað að upplýsingu og fræðslu, en einnig viðhaldið neikvæðum staðalímyndum. Þó fjölmiðlaumfjöllun hafi þróast til batnaðar síðustu ár, má enn finna merki um fordóma og smánun í umfjöllun þeirra. Niðurstöður benda til þess að neikvæð fjölmiðlamynd af geðsjúkdómum geti haft áhrif á sjálfsmynd og lífsgæði þeirra sem við þá glíma, og jafnframt dregið úr líkum á að fólk leiti sér meðferðar. Því er mikilvægt að fjölmiðlar tileinki sér ábyrgari framsetningu og hlutlæga umræðu um geðheilbrigði. Lykilorð: Geðsjúkdómar, fjölmiðlar, áhrif, samfélag, smánun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Elín Inga Ólafsdóttir 1987-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Guðbjörg Hildur Kolbeins 1967-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50677