Back to search

Bifröst University

Innflytjendur og menning: Geta menningarviðburðir, íþróttastarf og félagastarf haft áhrif á búsetulengd innflytjenda?

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um tengsl menningar við búsetulengd innflytjenda á Íslandi, sérstaklega á landsbyggðinni. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort menningartengd þjónusta geti stuðlað að lengri búsetu og inngildingu innflytjenda í minni bæjarfélögum, með sérstakri áherslu á Sveitarfélagið Hornafjörð. Rannsóknin var framkvæmd með blandaðri aðferð þar sem bæði eigindlegar og megindlegar aðferðir voru nýttar til að safna gögnum. Í rannsókninni er meðal annars rætt um aðlögun innflytjenda þar sem nýtt tungumál, ólíkir siðir og takmarkað aðgengi að menningartengdum viðburðum geti gert inngildingu þeirra erfiða. Þá er litið á aðlögun (e. assimilation) sem ferli þar sem einstaklingur aðlagar sig að breytilegu umhverfi. Þá er rætt um inngildingu (e. inclusion) sem þátttöku innflytjenda í samfélags- og menningarviðburðum. Þá er litið á hvort innflytjendur upplifi sig sem hluta af samfélaginu eða finni fyrir einangrun. Þá er samþætting innflytjenda einnig skoðuð en með samþættingu (e. integration) er átt við það þegar minnihlutahópar öðlast menningarlega og félagslega færni í samskiptum við meirihlutasamfélagið en viðhalda jafnframt einkennum frá upprunasamfélaginu. Rætt var við innflytjendur sem búa í Sveitarfélaginu Hornafirði um möguleika þeirra á að byggja upp tengsl við heimamenn. Þá var einnig rætt við þau um búsetu, félagslega þátttöku, takmarkanir vegna tungumálaerfiðleika, skorts á tækifærum og fábreytileika í viðburðum. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að aukin inngilding innflytjenda í menningar- og samfélagsstarfsemi geti dregið úr félagslegri einangrun þeirra og stuðlað að lengri búsetutíma. En með því að stuðla að menningarlegri þátttöku og skapa rými fyrir innflytjendur til að viðhalda og miðla eigin menningu verður samfélagið sterkara og fjölbreyttara.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eyrún Helga Ævarsdóttir 1979-
Advisor dc:description.advisor
  • Lara Wilhelmine Hoffmann 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50686

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eyrún Helga Ævarsdóttir 1979-. Innflytjendur og menning: Geta menningarviðburðir, íþróttastarf og félagastarf haft áhrif á búsetulengd innflytjenda?. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50686