Back to search

Bifröst University

Sjálfbærni í hótelrekstri á Íslandi: Hvers vegna velja hótel sjálfbæra stefnu og vottanir?

Abstract

dc:description.abstract

Sjálfbærni í hótelrekstri á Íslandi hefur fengið aukna athygli undanfarin ár vegna vaxandi umhverfisvitundar og samfélagslegrar ábyrgðar fyrirtækja. Markmið þessarar rannsóknar er að greina ástæður þess að íslensk hótel og hótelkeðjur innleiða sjálfbæra stefnu og vottanir. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði þar sem tekin voru viðtöl við stjórnendur níu hótela og hótelkeðja. Helstu niðurstöður sýna að ástæður fyrir innleiðingu sjálfbærrar stefnu eru margþættar. Fyrir flest hótel skiptir samfélagsleg ábyrgð og verndun íslenskrar náttúru lykilmáli, þar sem hótelin byggja rekstur sinn á einstakri náttúru landsins. Aðrir hvatar eru aukin samkeppnishæfni, væntingar viðskiptavina, áhrif hagsmunaaðila og hagræðing í rekstri. Það kemur í ljós að stjórnendur gegna mikilvægu hlutverki í mótun stefnu um sjálfbærni, en einnig hafa samtök sem tengjast ferðaþjónustunni, lög og fjárfestar áhrif á þróun hennar. Rannsóknin dregur fram mikilvægi þess að hótel hafi skýra stefnu um sjálfbærni sem getur bæði styrkt ímynd þeirra og stuðlað að sjálfbærni innan ferðaþjónustunnar. Hún gefur innsýn í þá þætti sem hvetja fyrirtæki til að taka upp sjálfbæra stefnu og hvernig slík stefna getur skilað hagnýtum og siðferðilegum ávinningi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eyrún Gunnarsdóttir 1994-
Advisor dc:description.advisor
  • Elín Jónsdóttir 1966-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50690

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eyrún Gunnarsdóttir 1994-. Sjálfbærni í hótelrekstri á Íslandi: Hvers vegna velja hótel sjálfbæra stefnu og vottanir?. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50690