Bifröst University
Þróun í takt við tímann: Aðlögunarhæfni íslenskra handverksbrugghúsa
Abstract
dc:description.abstractHandverksbrugghús á Íslandi hafa þurft að aðlaga sig að síbreytilegum markaðsaðstæðum, þar á meðal lagalegum takmörkunum, samkeppni við stærri brugghús og breytilegri neytendahegðun. Markmið rannsóknarinnar er að greina hvernig íslensk handverksbrugghús hafa brugðist við þessum áskorunum og hvaða aðferðir þau hafa notast við til að styrkja sína samkeppnisstöðu. Rannsóknin byggist á blandaðri rannsóknaraðferð þar sem bæði eigindleg og megindleg gögn eru greind. Niðurstöður benda til þess að aðlögunarhæfni, nýsköpun og sérstaða séu lykilþættir í velgengni handverksbrugghúsa. Neytendur sýna ört vaxandi áhuga á sérvöldum gæða bjórum, þó ljósi bjórinn sé enn ríkjandi á markaðnum. Það kemur einnig fram að sala beint frá framleiðslustað og aukin markaðssetning gegna mikilvægu hlutverki í auknum sýnileika. Rannsóknin veitir innsýn í þróun handverksbjórs á Íslandi og gefur einnig leiðbeiningar um hvernig brugghús geta viðhaldið samkeppnishæfni í framtíðinni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ragnheiður Ýr Guðjónsdóttir 1990-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Sigurður Blöndal 1959-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50818