Abstract
dc:description.abstractÁ síðustu árum hefur skapandi markaðssetning orðið mikilvægur þáttur í vörumerkjauppbyggingu og samskiptum vörumerkja við neytendur. Í þessari rannsókn er beint sjónum að því hvernig íslensk vörumerki nýta skapandi markaðsaðferðir til að byggja upp sterka vörumerkjaímynd og skapa tilfinningaleg tengsl við neytendur þeirra. Rannsóknin tekur fyrir vörumerki sem hafa hlotið tilnefningu Brandr-viðurkenningar sem ,,Besta íslenska vörumerkið‘‘ á neytendamarkaði, með færra en 50 starfsfólk. Markaðsefni þeirra er greint út frá kenningum um frásagnarmarkaðssetningu (storytelling marketing), vörumerkjaauðkenni (brand identity) og upplifunarhagkerfinu (experience economy). Notast er við eigindlega aðferðafræði í rannsókninni, þar sem þemagreining á markaðsefni valinna vörumerkja er gerð út frá Storytelling Analaysis Methodology (Chautard og Collin-Lachaud, 2019), Brand Identity Prism (Kapferer, 1997) og Brand Archetypes (Mark og Pearson, 2001). Þar að auki er kenningin Narrative Transportation Theory (Green og Brock, 2000) notuð til að greina hvernig frásagnarmarkaðsetning dregur neytendur inn í frásögn vörumerkisins. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að áhrifarík skapandi markaðssetning byggir á skýrri sjálfsmynd vörumerkja og hvernig þau koma skilaboðum sínum til skila. Þrátt fyrir að vörumerkin í rannsókninni séu ólík, má greina svipaða nálgun í hvernig markaðssetning er notuð til að skapa sterk tengsl við neytendur.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Emma Soffía Helgudóttir 1995-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Guðbjörg Hildur Kolbeins 1967-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50876