Back to search

Bifröst University

Gervigreind í netverslun: Áhrif og möguleikar gervigreindar á þjónustuupplifun og viðskiptatryggð neytenda

Abstract

dc:description.abstract

Gervigreind hefur á undanförnum árum orðið ein af öflugustu drifkröftum tæknibreytinga. Hún hefur gjörbreytt því hvernig fyrirtæki eiga samskipti við viðskiptavini, með því að bjóða upp á sjálfvirk samskipti, dýpri greiningu á hegðun og möguleika á sérsniðinni þjónustu. Þrátt fyrir þetta virðist innleiðing gervigreindar í íslenskum netverslunum vera skrefi á eftir því sem gerist hjá erlendum keppinautum. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða hvernig íslenskar netverslanir geta nýtt gervigreind til að bæta þjónustuupplifun neytenda og hvaða áhrif hún hefur á viðskiptatryggð þeirra. Til að svara rannsóknarspurningunum; Hvernig geta íslenskar netverslanir nýtt gervigreind til að bæta þjónustuupplifun neytenda?, Hvaða áhrif hefur gervigreind á viðskiptatryggð neytenda í íslenskum netverslunum?, var notast við eigindlega aðferð með viðtölum við sérfræðinga í verslun og þjónustu og megindlega aðferð í formi spurningakönnunar meðal íslenskra neytenda. Helstu niðurstöður benda til þess að bil sé á milli sýnar er sérfræðingar hafa og upplifunar neytenda. Sérfræðingar leggja áherslu á mikilvægi persónusniðinnar þjónustu og trúa á gildi gervigreindar í að skapa sterkari tengsl við viðskiptavini. Neytendur leggja hins vegar mesta áherslu á hagnýta þætti eins og verð, afhendingartíma og virkni síunar og leitarkerfa. Persónusníðing virðist skipta neytendur litlu máli í daglegri upplifun. Þessar niðurstöður benda til þess að íslenskar netverslanir ættu að einblína á að nýta gervigreind til að bæta þá þætti sem neytendur meta mest, til dæmis með því að bæta leitarkerfi, stytta afhendingartíma og greina eftirspurn með forspárgreiningu. Með markvissri tækninýtingu geta netverslanir aukið bæði skilvirkni og ánægju viðskiptavina, sem aftur getur haft jákvæð áhrif á viðskiptatryggð og samkeppnishæfni þeirra á íslenskum markaði. Lykilorð: Gervigreind, netverslun, þjónustuupplifun, viðskiptatryggð, persónusniðin þjónusta og neytendaupplifun

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hallfríður Elín Pétursdóttir 1996-
Advisor dc:description.advisor
  • Haraldur Daði Ragnarsson 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50915

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hallfríður Elín Pétursdóttir 1996-. Gervigreind í netverslun: Áhrif og möguleikar gervigreindar á þjónustuupplifun og viðskiptatryggð neytenda. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50915