Abstract
dc:description.abstractÚtdráttur Efni þessarar ritgerðar er starfsánægja stjórnenda með áherslu á þá sem hafa langa starfsreynslu hjá sama fyrirtæki. Stjórnendur gegna lykilhlutverki í velgengni fyrirtækja og hafa áhrif á starfsanda, vinnustaðamenningu og frammistöðu starfsfólks. Í fyrri hluta ritgerðarinnar er fjallað um fræðilegan bakgrunn, þar á meðal kenningar Herzbergs og Maslows um starfsánægju og hvatningu. Markmið rannsóknarinnar var að svara spurningunni: „Hvaða þættir hafa áhrif á starfsánægju stjórnenda?“ og var tilgangurinn að skoða reynslu stjórnenda með langan starfsaldur til að greina þá þætti sem hafa áhrif á starfsánægju þeirra. Rannsóknin var eigindleg og byggði á sjö viðtölum við stjórnendur sem höfðu starfað í sjö ár eða lengur hjá sama fyrirtæki. Greining gagna leiddi í ljós sex lykilþætti sem höfðu mest áhrif á starfsánægju stjórnenda: traust, samheldni, jákvæðni, upplýsingagjöf, öryggi og hegðun yfirmanna. Sérstök áhersla var lögð á mikilvægi trausts og skýrrar upplýsingagjafar, ásamt öryggi í starfi og félagslegri tengingu við vinnustaðinn. Niðurstöður rannsóknarinnar veita fyrirtækjum innsýn í hvernig hægt er að styðja við starfsánægju stjórnenda og þar með bæta stjórnunarhæfni og vinnustaðamenningu. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að skapa jákvætt, hvetjandi og traustvekjandi vinnuumhverfi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Harpa Sjöfn Lárusdóttir 1983-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Þóra Þorgeirsdóttir 1979-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51003