Bifröst University
Upplifun neytenda á þjónustuloforðum fjarskiptafyrirtækja á Íslandi
Abstract
dc:description.abstractMarkmið rigerðarinnar er að kanna hvernig neytendur skynja og upplifa þjónustuloforð fjarskiptafyrirtækja á Íslandi með áherslu á væntingar, skynjun og áhrif á tryggð. Rannsóknin byggir á megindlegri aðferðafræði þar sem gagna var aflað með rafrænni spurningakönnun. 428 þátttakendur svöruðu. Niðurstöðurnar gefa til kynna að þjónustuloforð eru oft lítið sýnileg og óskýr í augum neytenda. Margir þátttakendur höfðu takmarkaða vitneskju um hvað felst í loforðunum og sumir þekktu þau mögulega ekki yfirhöfuð. Svörin við því hvort fjarskiptafyrirtækin standi við þjónustuloforð sín einkennast af mikilli óákveðni sem bendir til þess að loforðin séu ekki nægilega skýr eða trúverðug í augum neytenda. Þessi niðurstaða samræmist því sem fram kemur í rannsókn Bhargava og Bedi (2021) þar sem tekið er fram að „talsverð óvissa sé til staðar í því hvernig markaðsaðgerðir eru túlkaðar“ og að „það sé líklegur breytileiki í bæði aðgerðum fyrirtækja við að byggja upp vörumerki og í skilningi og túlkun neytenda á þeim aðgerðum“ (bls. 5–6). Þetta undirstrikar að þjónustuloforð, ef þau eru ekki sett fram á skýran hátt, geta misst áhrif sín sem tæki til að móta væntingar og efla traust. Jafnframt kom í ljós að flestir þátttakendur telja mikilvægt að loforð séu efnd, sérstaklega eldri neytendur sem leggja áherslu á traust og áreiðanleika. Verð og áskriftakjör reyndust þó mikilvægasti þátturinn við val á fjarskiptafyrirtæki en þjónustuloforð, netgæði og traust skiptu einnig máli. Rannsóknin dregur fram þörf fyrir skýrari og markvissari miðlun loforða auk þess að tryggja að þau séu í samræmi við raunverulega þjónustu. Niðurstöðurnar veita mikilvægar vísbendingar fyrir stefnumótun í fjarskiptageiranum og leggja grunn að frekari rannsóknum á þessu sviði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðrún Huld Gunnarsdóttir 1980-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Ragnar Már Vilhjálmsson 1969-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51363