Bifröst University
Flytjandinn í forgrunni: Rannsókn á reynslu flytjenda af klassískum tónlistarflutningi
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari rannsókn er leitast við að varpa ljósi á reynslu og upplifun hljóðfæraleikara af klassískum tónlistarflutningi. Kannað er hvaða þættir hafa áhrif á tónleikaupplifun flytjanda, hvernig hann myndar sterk tengsl við áhorfendur og hvernig skapa má áhrifaríka tónleika fyrir báða aðila. Í þessu samhengi eru áhrif verktryggðar (þ.e. tryggð við óskir og fyrirmæli tónskáldsins) og tónlistarumhverfis snemmtónlistar sérstaklega til skoðunar. Rannsakandi er klassískur hljóðfæraleikari með sérhæfingu í snemmtónlistarflutningi. Rannsóknin er byggð á sjálfs-etnógrafískum aðferðum þar sem persónuleg reynsla rannsakanda af tónlistarflutningi er í brennidepli en hann hélt tónleikadagbók um 19 tónleika í rúmt ár. Til að varpa skýrara ljósi á reynslu sína leitaði rannsakandi einnig í safn persónulegra minninga og tók viðtöl við sjö tónlistarmenn. Rannsóknin sýnir að áhersla á lýtalausan flutning getur haft neikvæð áhrif á flytjanda og heft hann í tónlistarsköpun sinni. Ef flytjanda tekst hins vegar að losa sig úr viðjum verktryggðar þar sem frelsi til persónulegrar túlkunar, skapandi samspil flytjenda og afslöppuð ytri umgjörð tónleika er í fyrrirúmi, hefur það gjarnan jákvæð áhrif á tónleikaupplifunina og getur styrkt tengslin við áhorfendur. Reynsla rannsakanda og viðmælenda sýnir einnig að umhverfi og tónlistarnálgun snemmtónlistar færir þeim aukið frelsi og ánægju í tónlistarsköpuninni. Tónleikaupplifun er afar huglægt fyrirbæri og út frá persónulegu sjónarhorni og með einlægri frásögn leitast ég við að gefa góða innsýn í reynsluheim flytjenda og þá tónlistarmenningu sem umlykur þá. Jafnframt er það von mín að rannsóknin veiti innblástur til frekari umræðu um klassískan tónlistarflutning. Lykilorð: Klassísk tónlist, tónleikaupplifun, klassískur tónlistarflutningur, flytjendur, tónlistarmenning, sjálfs-etnógrafía, snemmtónlist, verktryggð, sköpun og frelsi í flutningi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hanna Loftsdóttir 1977-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Njörður Sigurjónsson 1974-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51365