Back to search

Bifröst University

Miðlun í náttúruhamförum: Upplifun og áhrif fjölmiðlaumfjöllunar á íbúa Grindavíkur

Abstract

dc:description.abstract

Náttúruhamfarir á Íslandi hafa í gegnum tíðina verið hluti af sögu okkar Íslendinga. Náttúruhamfarirnar sem geisað hafa í kringum og í Grindavík frá 2020 marka nýtt tímabil í eldgosatíma okkar á Reykjanesskaganum. Fjölmiðlar hafa gert þeim náttúruhamförum góð skil og komið mikilvægum upplýsingum til skila, bæði fyrir íbúa Grindavíkur og landsmenn. Hvernig íbúar Grindavíkur upplifðu þessa umfjöllun á tímum hamfara og hvaða áhrif sú umfjöllun hafði á andlega líðan bæjarbúa er umhugsunarvert fyrir fjölmiðla. Þetta vekur spurningar um það hvort hægt hefði verið að gera betur, taka meira tillit til aðstæðna og þess sem íbúar voru að upplifa. Í þessari rannsókn var stuðst við eigindlega rannsóknaraðferð sem var framkvæmd með þrjá rýnihópa, eða samtals tíu íbúa Grindavíkur sem áttu það sameiginlegt að upplifa rýmingu þann 10. nóvember 2023. Sú aðferð hentaði vel til að framkalla umræður um það sem viðmælendur höfðu upplifað. Niðurstöður rannsóknarinnar staðfesta mikilvægi fjölmiðla þegar kemur að því að miðla upplýsingum á hættutímum. Þær sýndu þó að upplýsingamiðlun var ekki nægilega markviss þegar kom að rýmingu bæjarins. Athygli var einnig vakin á því að æsifréttamennska hafi verið of mikil, mikið um fyrirsagnir og fréttir til að framkalla smellibeitur (e. click-bates) og neikvæðar fréttir um Grindavík og íbúa sem varð til þess að umræðan í samfélaginu varð neikvæðari í garð Grindvíkinga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helena Ósk Ívarsdóttir 1990-
Advisor dc:description.advisor
  • Andrea Guðmundsdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51368

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helena Ósk Ívarsdóttir 1990-. Miðlun í náttúruhamförum: Upplifun og áhrif fjölmiðlaumfjöllunar á íbúa Grindavíkur. 2025. https://hdl.handle.net/1946/51368