Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um fjármálastjórn sveitarfélaga á Íslandi með áherslu á skuldastýringu, áhættumat og framkvæmd fjárhagsáætlana. Markmið rannsóknarinnar er að greina hvernig ársreikningar og fjárhagsáætlanir endurspegla raunverulega stöðu sveitarfélaga og hvernig stjórnendur upplifa áskoranir í fjármálastjórn innan núverandi kerfisramma. Rannsóknin byggir á blandaðri aðferð. Annars vegar megindlegri greiningu á ársreikningum og fjárhagsáætlunum sveitarfélaga fyrir árið 2024 og hins vegar eigindlegum viðtölum við sveitarstjóra og fjármálastjóra í sveitarfélögum af mismunandi stærð. Rannsóknin byggir á kenningum um ábyrg fjármál og jafnvægi á milli sjálfstæðis og aðhalds í opinberri stjórnsýslu. Helstu niðurstöður sýna að íslensk sveitarfélög beita almennt ábyrgð og varfærni í fjármálastjórn. Rekstrarleg staða þeirra er stöðug og frávik milli áætlana og rauntalna er að jafnaði hófleg. Stærri sveitarfélög búa yfir tæknilegri lausnum og meira svigrúmi en smærri sveitarfélög leggja meiri áherslu á samráð og varfærni. Kerfisrammi fjármála sveitarfélaga tryggir jafnvægi og eftirlit en er að hluta til of einsleitur og tekur ekki nægilega mið af fjölbreytileika sveitarfélaga. Viðmælendur leggja áherslu á að þörf sé á að bæta samræmi í bókhaldsstöðlum og stigskiptum viðmiðum í eftirliti sem endurspegla mismunandi aðstæður og getu sveitarfélaga. Rannsóknin dregur upp mynd af því hvernig sveitarfélög vinna að því að stýra skuldum og áhættu og varpar ljósi á hvernig kerfislægar takmarkanir og óvissa geta haft áhrif á sjálfbærni og stefnumótun í opinberum fjármálum. Niðurstöðurnar benda til að framtíð fjármálastórnunar sveitarfélaga á Íslandi felist í aukinni stafrænni eftirfylgni, gagnsæi og samvinnu milli ríkis og sveitarstjórnarstigs.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristinn Gauti Einarsson 1987-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Stefán Valgarð Kalmansson 1961-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52108